Átaksvika Landverndar hafin

Landvernd hefur hafið átaksviku sína í fjölgun félagsmanna. Allir eru velkomnir í Landvernd.

Landvernd hóf í dag átaksviku í fjölgun félagsmanna og kynningu á starfsemi samtakanna. Daglega munu stiklur úr starfi samtakanna verða gerðar aðgengilegar á félagsmiðlum. Á miðvikudag munu samtökin sýna heimildamyndina Álöldina eftir Bert Ehgartner í samstarfi við Bíó Paradís. Sýning myndarinnar hefst kl. 18. Á laugardag mun Landvernd svo kynna starfsemi sína í göngugötu Kringlunnar.

Við hvetjum fólk til að ganga til liðs við Landvernd, skrá sig í samtökin hér á heimasíðunni og hjálpa þannig til við að efla náttúruvernd og umhverfismennt á Íslandi.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd