Sjálfbær ferðamennska á háhitasvæðum – málþing Landverndar 21. maí

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum er tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012. Verkefnið er hugsað sem fyrsti hluti af langtímaverkefni um verndun jarðhita á Íslandi.

Landvernd efnir til málþings um sjálfbæra ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum, mánudaginn21. maí nk. í Nauthóli við Nauthólsvík kl. 13:00-16:15. Allir velkomnir! Sjá dagskrá hér fyrir neðan.

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum er tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012. Verkefnið er hugsað sem fyrsti hluti af langtímaverkefni um verndun jarðhita á Íslandi. Með verkefninu vill Landvernd stuðla að vernd þessara einstöku auðlinda okkar þannig að núlifandi og komandi kynslóðir geti notið þeirra.

Dagskrá

13:00 Setning málþings, Sveinbjörn Björnsson, Landvernd

13:05 Eðli og náttúra háhitasvæða hér og erlendis, ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og forseti Ferðafélags Íslands

13:40 Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum – kynning á verkefni Landverndar, Birta Bjargardóttir, Landvernd

13:45 Gildi jarðminja á háhitasvæðum, Kristján Jónasson, Náttúrufræðistofnun Íslands

14:05 Gildi lífríkis á háhitasvæðum, Ásrún Elmarsdóttir, Náttúrufræðistofnun Íslands

14:30 KAFFI

14:50 Gildi háhitasvæða fyrir ferðaþjónustu, Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum

15:10 Öryggismál ferðamanna á háhitasvæðum, Jónas Guðmundsson, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu

15:25 Pallborðsumræður

16:15 Málþingi lýkur

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðsumræðu: Anna G. Sverrisdóttir, Landvernd

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd