Stórtónleikar og heimsfrumsýning til styrktar náttúruvernd

Þriðjudaginn 18. mars efna listamenn til stórtónleika í Hörpu og Darren Aronofsky heimsfrumsýnir kvikmyndina Noah í Sambíóunum í Egilshöll til styrktar Landvernd og Náttúruverndarsamtökum Íslands. Yfirskrift viðburðanna er Stopp - Gætum garðsins!

Þriðjudaginn 18. mars efna listamenn til stórtónleika í Hörpu og Darren Aronofsky heimsfrumsýnir kvikmyndina Noah í Sambíóunum í Egilshöll til styrktar Landvernd og Náttúruverndarsamtökum Íslands. Yfirskrift viðburðanna er Stopp – Gætum garðsins!

Á stórtónleikunum í Eldborg koma fram Highlands, Patti Smith, Mammút, Retro Stefson, Of Monsters and Men, Björk, Samaris og Lykke Li. Miðasala hefst þriðjudaginn 4. mars kl. 10 á harpa.is og midi.is. Frumsýningin í Sambíóunum í Egilshöll verður kl. 17:30 og tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:30 en húsið opnar 30 mínútum fyrr. Takmarkað magn miða er í boði á bæði kvikmyndasýninguna og tónleikana.

Allir listamenn gefa vinnu sína og allur ágóði rennur til Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Sérstakur söfnunarreikningur hefur verið opnaður og renna öll framlög beint til Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands: kt. 640971-0459 / 0301-13-302792.

Sameiginleg yfirlýsing Stopp – Gætum garðsins!
Um heim allan hefur náttúru og umhverfi verið fórnað á altari þróunar sem aldrei getur talist sjálfbær. Regnskógum er eytt, vatnsföll stífluð, landi eytt, vatn og höf menguð, loftslagi jarðar breytt og höfin súrna ört.

Á Íslandi hefur Kárahnjúkavirkjun orðið táknmynd þeirra eyðileggingar sem ógnar tilvist mannsins á jörðinni. Það er skylda okkar að vernda íslenska náttúru og skila henni heilli til framtíðarkynslóða.

Hálendi Íslands, stærsta víðerni í Evrópu þar sem ósnortin og lítt snortin náttúra fá enn notið sín, er ekki bara athvarf og fjársjóður okkar sem erfðum og munu erfa þetta land heldur heimsins alls. Hvergi annars staðar er að finna Mývatn, Þjórsárver, Sprengisand, Skaftafell og Langasjó.

Við krefjumst þess að Þjórsárver, víðernin vestan Þjórsár og fossarnir í Þjórsá verði verndaðir til allrar framtíðar. Við mótmælum harðlega áformum umhverfis- og auðlindaráðherra um breytt friðlandsmörk í Þjórsárverum til að skapa rými fyrir Norðlingaölduveitu eða annað miðlunarlón við Þjórsárver. Sú lagatúlkun ráðherra að allir virkjunarkostir eða náttúrusvæði séu undir í hverjum nýjum áfanga rammaáætlunar er aðför náttúru landsins og stenst vart lög.

Við höfum einstakt tækifæri núna til að gera hálendið allt að einum þjóðgarði með lögum frá Alþingi. Þar með verði hálendi Íslands sett undir eina skipulagsstjórn og skýrt afmarkað. Þar með heyri öll áform um lagningu raflína, vegagerð eða önnur mannvirki sem kljúfa eða sundra dýrmætum landslagsheildum hálendisins sögunni til.

Við vörum eindregið við hvers kyns áformum um virkjun jarðvarma við Mývatn. Bygging Bjarnarflagsvirkjunar er ekki áhættunar virði. Hvergi í heiminum er annað Mývatn til. Ábyrgð okkar er því mikil.

Við krefjumst þess að einstök náttúra Reykjaness verði vernduð með stofnun eldfjallaþjóðgarðs og að allar nýjar raflínur verði lagðar í jörð.

Við teljum afar brýnt að ríkisvaldið tryggi landvörslu og verji dýrmæt náttúrusvæði gegn sívaxandi ágangi ferðamanna.

Við mótmælum sérstaklega aðför yfirvalda að náttúruverndarfólki, þar sem fordæmalaus yfirgangur lögreglu og ákærur gagnvart þeim sem vilja vernda Gálgahraun var grimmur og óþarfur. Við minnum á að réttur almennings til að mótmæla náttúruspjöllum hvarvetna um heim allan er heilagur og grunnforsenda þess að mannkyni takist að forða tortímingu mannlífs á jörðinni.

Við krefjumst þess að frumvarp til laga um brottfall nýrra náttúruverndarlaga verði dregið til baka og að ný lög um náttúruvernd taki gildi 1. apríl eins og lögin kveða á um.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd