Jarðhitaverkefni Landverndar

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum var tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012.

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum var tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012.

Hérlendis er að finna stórbrotin og sérstök jarðhitasvæði sem eiga fáa sína líka í heiminum. Fjölbreytileiki svæðanna er mikill, hvort sem horft er til jarðfræði, líffræði eða litasamsetningar. Kannanir hafa sýnt að yfir 80% erlendra ferðamanna nefnir náttúru Íslands sem helsta aðdráttarafl landsins og þar spila jarðhitasvæði stórt hlutverk.

Afar mikilvægt er að tryggja vernd þessara einstöku auðlinda okkar þannig að Íslendingar, erlendir gestir, og komandi kynslóðir geti notið þeirra líka. Þessi svæði eru oft á tíðum sérstaklega viðkvæm fyrir átroðningi og umferð, en eru einnig beinlínis hættuleg ef ekki er farið varlega. Það er því mikilvægt að auka fræðslu um hina sérstöku jarðfræði, líffræði og verndargildi jarðhitasvæða og tryggja öryggi ferðamanna. Þannig má stuðla að ferðamennsku í sátt við umhverfi og náttúru. 

Um verkefnið

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum var tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012. Verkefnið er hugsað sem fyrsti hluti af langtímaverkefni um verndun jarðhita á Íslandi.

Verkefnið skiptist í fjóra verkþætti; skoðunarferðir, gerð fræðsluefnis, upplýsingaskilti og ráðstefnu.

Markmið

Mikill áhugi er á að þróa náttúrutengda ferðaþjónustu á Íslandi í átt að sjálfbærni.

Markmið jarðhitaverkefnis Landverndar er að vernda viðkvæma náttúru jarðhitasvæða og renna styrkari stoðum undir sjálfbæra ferðamennsku á slíkum svæðum. Þessu skal náð með því að:

  • auka fræðslu um jarðfræði, líffræði og náttúruverndargildi jarðhitasvæða
  • auka öryggi ferðamanna með betri upplýsingum um aðgengi og umgengni
  • fjölga tækifærum á heimsóknum og náttúruupplifun á fáförnum jarðhitasvæðum á hálendinu
  •  

Fræðsluefni

Reykjadalur

  • Upplýsingaskilti við Rjúpnabrekkur
  • Upplýsingaskilti við Ölkelduháls
  • Varúðarskilti
  • Bæklingur um hverasvæðið í Reykjadal

Kerlingarfjöll

  • Upplýsingaskilti við Hveradali
  • Upplýsingaskilti um Kerlingarfjöll
  • Varúðarskilti

Vonarskarð

  • Upplýsingaskilti við Nýjadal
  • Upplýsingaskilti við Svarthöfða
  • Upplýsingaskilti við Gjósturklif
  • Bæklingur um Vonarskarð

Kverkfjöll

  • Upplýsingaskilti við Sigurðarskála
  • Bæklingur um Kverkfjöll

Samstarfsaðilar

  • Náttúrufræðistofnun Íslands lagði fram vinnu sérfræðinga á sviði náttúrufars við gerð fræðsluefnis og upplýsingaskilta, auk þess að koma að leiðsögn í skoðunarferðum og að taka þátt í ráðstefnu.
  • Landsbjörg lagði fram sérfræðivinnu er lítur að öryggismálum fyrir gerð fræðsluefnis og upplýsingaskilta, auk ráðstefnu.
  • Ferðafélag Íslands kom að skipulagningu skoðunarferða.
  • Vatnajökulsþjóðgarður kom að gerð upplýsingaskilta í þjóðgarðinum.

Verkefnisstjórn:

  • Rannveig Magnúsdóttir, líffræðingur og starfsmaður Landverndar, verkefnisstjóri.
  • Sveinbjörn Björnsson (formaður), jarðeðlisfræðingur og fyrrum rektor Háskóla Íslands.
  • Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði HÍ.
  • Guðríður Þorvarðardóttir, sérfræðingur, umhverfisráðuneyti.
  • Jónas Guðmundsson, sérfræðingur, Landsbjörgu.
  • Lovísa Ásbjörnsdóttir, Náttúrufræðistofnun Íslands.

Fjármögnun

Helstu styrktaraðilar:

  • Original Buff, S.A. í gegnum European Outdoor Conservation Association (EOCA)
  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
  • Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
  • Vinir Vatnajökuls
  • Aðrir samstarfsaðilar

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd