Áfangasigur í baráttunni fyrir verndun Mývatns

Skipulagsstofnun hefur ákveðið að endurgera þurfi umhverfismat fyrir Bjarnarflagsvirkjun við Mývatn

Landvernd hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu í tilefni af ákvörðun Skipulagsstofnunar um að endurgera þurfi umhverfismat Bjarnarflagsvirkjunar í Mývatnssveit. 

Landvernd fagnar ákvörðun Skipulagsstofnunar um að endurtaka beri umhverfismat fyrir Bjarnarflagsvirkjun við Mývatn. Með þessu staðfestir Skipulagsstofnun þá varúðarnálgun sem Landvernd hefur lagt áherslu á að farin sé vegna virkjanaáforma í Bjarnarflagi og að nauðsynlegt er að draga úr óvissu um áhrif virkjunarinnar. Það varðar m.a. brennisteinsvetnismengun og áhrif hennar á heilsu fólks og mögulegar breytingar á innflæði næringarefna inn í Mývatn.

Í september 2012 sendu Landvernd og Fuglavernd kvörtun til Ramsarskrifstofunnar vegna undirbúningsframkvæmda Landsvirkjunar í Bjarnarflagi. Í kjölfarið kom sendinefnd Ramsarsamningsins í opinbera skoðunarferð sumarið 2013. Skrifstofan sendi frá sér skýrslu í desember 2013 þar sem mælt var með því að endurgera umhverfismat Bjarnarflagsvirkjunar og að taka sérstakt tillit til samlegðaráhrifa frá mögulegri stækkun Kröfluvirkjunar, líkt og Landvernd hafði bent á. Undir þetta mat er tekið í ákvörðun Skipulagsstofnunar.

Landvernd fagnar því niðurstöðu Skipulagsstofnunar sem er áfangasigur í baráttunni fyrir vernd lífríkis Mývatns.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun v. Bjarnarflags

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd