Landvernd óskar eftir starfsmanni í Grænfánaverkefnið

Landvernd auglýsir laust til umsóknar starf við verkefnið Skólar á grænni grein - grænfánaverkefnið. Ráðið verður til sex mánuða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Landvernd óskar eftir að ráða starfsmann við verkefnið Skólar á grænni grein – Grænfánaverkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni sem rekið er í yfir 200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi. Ráðið verður til sex mánaða frá byrjun september með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Starfssvið

Starfsmaður tekur m.a. þátt í úttektum á umhverfisstarfi þátttökuskóla, veitir skólum ráðgjöf um umhverfismál, kemur að gagnaöflun, úrvinnslu og skýrsluskrifum og tekur þátt í þróun verkefnisins.

Menntun og hæfniskröfur
Krafist er háskólaprófs á sviði umhverfisfræða og/eða menntavísinda, og áhuga á umhverfismálum. Þekking og reynsla af skólastarfi, þ.m.t. af menntun til sjálfbærni, er æskileg. Góðir samskiptahæfileikar eru nauðsynlegir, jafnt hvað varðar börn, unglinga og fullorðna. Gerð er krafa um frumkvæði, sjálfstæði og jákvæðni í starfi og öguð og skipulögð vinnubrögð. Starfið felur í sér allmörg ferðalög innanlands.

Kröfur til umsóknar og frestur
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinargerð þar sem ástæða umsóknar er útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu lýst og listi yfir 2-3 meðmælendur gefinn. Umsóknir skulu sendar á mummi@landvernd.is, merktar „Grænfáni umsókn“. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst n.k.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar í s. 552-5242.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd