Ferðir og viðburðir
Bill McKibben stofnandi 350.org flutti fyrirlestur um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum í Háskólabíói 5. maí sl. í boði Landverndar, Norræna hússins og námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ.
Nokkur náttúruverndarsamtök bjóða til gönguferðar um Krýsuvíkursvæðið fimmtudaginn 9. maí. Ferðin er farin undir heitinu Verjum Krýsuvík!
Landvernd efnir til tveggja málþinga um sjálfbæra ferðamennsku á háhitasvæðum, annarsvegar í Reykjavík 7. maí kl. 13-17 og hinsvegar í Mývatnssveit 10. maí kl. 14-17
Landvernd, Norræna húsið og námsbraut í umhverfis- og auðlindafræði HÍ bjóða rithöfundinum og umhverfissinnanum Bill McKibben til landsins. Hann heldur opinn fyrirlestur 5. maí.
Miðvikudaginn 1. maí verður græn ganga á vegum samtaka um náttúru- og umhverfisvernd. Gangan verður farin niður Laugaveg í kjölfar kröfugöngu verkalýðsfélaganna.
Ferðir með Landvernd og Ferðafélagi Íslands í sumar
Bjarki Valtýsson, lektor við Kaupmannahafnarháskóla flutti erindi sem fjallaði um félagsmiðla, svo sem facebook, og umhverfisvernd.
Einar Bergmundur Arnbjörnsson og Guðrún A. Tryggvadóttir fluttu erindið ,,Náttúran á umbrotatímum" og fjölluðu um vefinn náttúran.is og upplýsingamiðlun í umhverfismálum.
Bjarki Valtýsson hjá Kaupmannahafnarháskóla og Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson hjá Natturan.is eru næstu fyrirlesarar í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins, 3. janúar n.k.
Landvernd vekur athygli á borgarafundi Hraunavina fimmtudagskvöldið 29. nóvember kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Hvetjum alla til að mæta
Næstu erindi í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins verða flutt af Shelley McIvor frá Global Action Plan í London og Helenu Óladóttur hjá Náttúruskóla Reykjavíkur þann 21. nóvember kl. 16-18.
Landvernd og Franska sendiráðið á Íslandi efna til fyrirlestrar um menntun til sjálfbærrar þróunar í sal Arion banka (Þingvöllum) í Borgartúni 19, þann 6. nóvember kl. 14:30.
Framkvæmdastjóri Landverndar hélt fyrirlestur um mikilvægi náttúrunnar og náttúruverndar fyrir þróun og framtíð ferðaþjónustunnar og lagði sérstaka áherslu á hálendi Íslands
Landvernd og Norræna húsið hleypa af stokkunum fyrirlestraröðinni Frá vitund til verka um hugarfarsbreytingu í umhverfismálum miðvikudaginn 17. október kl. 16 í Norræna húsinu.
Landvernd og Ferðafélag Íslands efna til gönguferðar á Hengilssvæðinu laugardaginn 29. september n.k. Farið verður í Köldulaugagil, Hagavíkurlaugar og um Stangarháls og sagt frá jarðfræði og líffræði þessara einstöku svæða.
Landvernd tekur þátt í degi íslenskrar náttúru þann 16. september n.k. og efnir ásamt fimm öðrum félagasamtökum til hjólaævintýris um höfuðborgarsvæðið þar sem ævintýrafólk kemst í nána snertingu við lífríki og náttúru.
Landvörður í Alviðru leiðir gesti um Öndverðanes í Ölfusi við bakka Sogsins og að þeim stað þar sem Hvítá og Sogið mætast og sameinast í Ölfusá.
Sunnudaginn 12. ágúst kl. 13-16 býður Landvernd upp á plöntugreiningarnámskeið í Alviðru í Ölfusi.
Í boði verður fjölbreytt náttúruskoðun og ganga fyrir alla fjölskylduna í fallegu umhverfi við Sogið. Skoðuð verða skordýr, plöntur og fuglar og farið í skemmtilega náttúruleiki. Eitthvað við allra hæfi. Aðgangur ókeypis.
Landvernd stendur fyrir þremur ferðum í sumar í samstarfi við Ferðafélag Íslands (FÍ). Skráning er hjá FÍ í síma 568 2533 eða með því að senda tölvupóst á fi@fi.is. Lýsingu ferðanna má sjá hér að neðan
Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands (NSVE) efna til opins fundar til bjargar náttúruperlum í Reykjanesfólkvangi og nágrenni. Framsöguerindi sérfræðinga og pallborðsumræður með stjórnmálamönnum
Landvernd efndi til málþings um sjálfbæra ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum mánudaginn 21. maí síðastliðinn í Nauthóli við Nauthólsvík. Málþingið var liður í verkefni Landverndar með sama heiti, en sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á há...
Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum er tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012. Verkefnið er hugsað sem fyrsti hluti af langtímaverkefni um verndun jarðhita á Íslandi.
Aðalfundur Landverndar árið 2012 verður haldinn í Nauthóli við Nauthólsvík laugardaginn 12. maí og hefst kl. 10, en húsið verður opnað 9:45. Dagskrá fundarins fer hér á eftir.
Landvernd og Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi efna til málþings um áhrif virkjana í Skaftárhreppi í Norræna húsinu laugardaginn 5. maí kl. 12-15. Um tvær virkjanahugmyndir við Fjallabakssvæðið er að ræða; Búlandsvirkjun í Skaftártungu...
Náttúruverndarhreyfingin á Íslandi efnir til náttúruverndarþings 2012 í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 28. apríl kl. 10-16:30. Fjallað verður um stöðu rammaáætlunar, ferðaþjónustu, lýðræði, friðlönd og skipulag og starf náttúruverndarfélaga.
Umhverfisráð Norðurlandaráðs efnir til fundar í Norræna húsinu um kjarnorkuöryggi mánudaginn 7. maí kl. 16:30-18:30. Fundurinn fer fram á ,,skandinavísku".
Program
Åpning
Álfheidur Ingadottir, medlem av Nordisk råd
Kampen om Sellafie...
Landvernd og Félag umhverfisfræðinga á Íslandi efna til opins fundar um þingsályktun um eflingu græna hagkerfisins. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 11. apríl kl. 12:00-13:30.
Erindi:
Grænt hagkerfi - lykil...
Hið íslenska náttúrufræðifélag efnir til fræðsluerindis mánudaginn 26. mars kl. 17:15 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands um Sigurð Þórarinsson jarðfræðing.
„Í erindinu verða nefnd dæmi um rannsóknir íslenskra jökla á fyrri hluta 20. ...
Landvernd kemur að skipulagningu Náttúruverndarþing 2012 sem verður haldið laugardaginn 28. apríl n.k. í Háskólanum í Reykjavík (stofu M-101) frá kl. 10-16:30. Takið daginn endilega frá. Á þinginu er fyrirhugað að ræða eftirfarandi:
Fjörutíu ár eru nú liðin síðan barátta heimamanna í Gnúpverjahreppi fyrir verndun Þjórsárvera hófst. Þann 17. mars 1972 boðaði landgræðslunefnd Ungmennafélags Gnúpverja til almenns sveitarfundar um Þjórsárver
Stofnaður hefur verið gönguhópur Landverndar. Þetta er liður í að styrkja grasrótarstarf samtakanna. Gönguhópurinn er hugsaður sem óformlegur hópur fólkssem deilir því áhugamáli að ganga sér til ánægju og yndisauka. Allir eru velkomnir í göngur, féla...
Kynningarfundur um umsögn þrettán náttúruverndarsamtaka um drög að tillögu að þingsályktun um verndun og orkunýtingu landssvæða verður haldinn í Þjóðminjasafninu miðvikudag 8. febrúar kl. 12-13:30.
Landvernd efnir til opins fundar um stjórnun þjóðgarðsins á Þingvöllum og álag á vistkerfi Þingvallavatns. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu, þriðjudaginn 17. janúar kl. 12-13:30. Sigrún Helgadóttir náttúrufræðingur og Hilmar J. Malmquist líf...
Þann 8. janúar 2012 verða liðin 100 ár frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, eins ástsælasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld. Á þessum degi ætla félög og samtök sem tengjast náttúruvísindum, náttúruvernd og útiveru að efna t...
Í tilefni af aldarminningu Sigurðar ÞórarinssonarÞann 8. janúar 2012 verða liðin 100 ár frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, eins ástsælasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld. Á þessum degi ætla félög og samtök sem tengjast nátt...
Landvernd býður til göngu á Þingvöllum á Degi íslenskrar náttúru, föstudaginn 16. september, kl. 18.00.
Næstu gönguferð Landverndar og Ferðafélags Ísland er heitið í Vonarskarð sem er víðerni í Vatnajökulsþjóðgarði. Tilgangur ferðarinnar er að kanna eina af fágætum perlum íslenskrar náttúru, - að þessu sinni hverasvæði sem skartar óvenju litríkum hvera...
Enn eru nokkur sæti laus í gönguferð Landverndar og Ferðafélags Íslands um fjöll og fjölskrúðug hverasvæði Kerlingarfjalla 8-10. júlí. Sigmundur Einarsson jarðfræðingur leiðir hópinn og fræðir um þau fyrirbæri sem á vegi hans verða.
Landvernd hefur undanfarin ár skipulagt gönguferðir um jarðhitasvæði sem komið hefur til álita að nýta til orkuvinnslu. Að kvöldi fimmtudags 16. júní kl. 18.00 er ferðinni heitið í Grændal sem er jarðhitasvæði inn af Hveragerði.
Undanfarin sumur hefur Landvernd ferðast um jarðhitasvæði, ásamt fríðu föruneyti ferðafélaga og sérfróðra leiðsögumanna. Í sumar ætla samtökin að bjóða aftur upp á ferðir í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Fyrsta ferðin verður farin um Reykjanes und...
Nú styttist í vettvangsferð Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Græna netsins um eitthvert magnaðasta eldsumbrotasvæði veraldarsögunnar, Skaftárhrepp og nærsveitir. Sigmundur Einarsson jarðfræðingur verður leiðsögumaður í ferðinni og mun ha...
Sunnudaginn 4.júlí fór 40 manna hópur á vegum Landverndar og Ferðafélags Íslands í gönguferð um hið ægifögra umhverfi Trölladyngju og Sogana á Reykjanesskaga. Ferðin var afar vel heppnuð og allir fóru heim fullir fróðleiks eftir góða leiðsögn Sigmund...
Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir Freysteinsvöku á Elliðavatni laugardaginn 7. nóvember, kl. 13-17. Umfjöllunarefni hennar verður náttúrufræðingurinn Freysteinn Sigurðsson, sem lést á síðast liðnu ári, og hin fjölbreytilegu áhugasvið hans.
Tónleikarnir í Þjóðleikhús-kjallaranum í gærkvöldi voru vel lukkaðir. Það hefur verið sýnt og sannað eina ferðina enn að Rokkið kemur frá Reykjanesi. Um fjörutíu tónlistarmenn af svæðinu leggja málefninu lið og rokka fyrir framtíðarsýn um Reykjanessk...
Þrjár kynslóðir tónlistarmanna úr Reykjanesbæ og nágrenni leggja málefninu lið og Rokka fyrir Reykjanes í sátt við umhverfið. Öllum hagnaði af tónleikunum verður varið í kynningu á hugmynd Landverndar um að gera Reykjanesskaga að Eldfjallagarði og fó...
Landvernd, Leiðsögumenn Reykjaness, Ferðafélag Íslands og Ferlir stóðu saman fyrir ferð í Brennisteinsfjöll. Ferðin var liður í að kynna framtíðarsýn Landverndar um Reykjanesskaga sem Eldfjallagarð og fólkvang.
Í tilefni af 70 ára afmæli náttúrufræðingsins og náttúruljósmyndarans Hjörleifs Guttormssonar stendur Landvernd fyrir sýningu á ljósmyndum hans í Öskju. Hagnaður af sölu rennur til Lögverndarsjóðs Landverndar.
Sýning stendur nú yfir á ljósmyndum eftir Hjörleif Guttomsson náttúrufræðing í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands að Sturlugötu 7 og lýkur henni 25. maí næstkomandi. Ljósmyndirnar verða til sölu að sýningu lokinni og mun söluverð renna til Lögve...