Fréttir
Hafin er söfnun undirskrifta til stuðnings kröfu Landverndar um að Landsvirkjun stöðvi framkvæmdirvið 45-90 MW Bjarnarflagsvirkjun og vinni nýtt mat á umhverfisáhrifumvirkjunarinnar.
Rúmur þriðjungur almennings er andvígur fyrirhugaðriháspennulínu Landsnets yfir hálendið um Sprengisand, en nokkru færri, eða 28,6%,eru henni fylgjandi. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup vann fyrirLandvernd.
Nokkur náttúruverndarsamtök bjóða til gönguferðar um Krýsuvíkursvæðið fimmtudaginn 9. maí. Ferðin er farin undir heitinu Verjum Krýsuvík!
Landvernd efnir til tveggja málþinga um sjálfbæra ferðamennsku á háhitasvæðum, annarsvegar í Reykjavík 7. maí kl. 13-17 og hinsvegar í Mývatnssveit 10. maí kl. 14-17
Bill McKibben hitti fulltrúa þingflokka á hádegisfundi í dag. Hann sagði að nú væri mikilvægt að einhver þjóð bryti ísinn og tilkynnti að olía, gas eða kol yrðu ekki unnin úr jörðu þótt möguleikinn á því væri fyrir hendi. Slík yfirlýsing frá íslensku...
Landvernd, Norræna húsið og námsbraut í umhverfis- og auðlindafræði HÍ bjóða rithöfundinum og umhverfissinnanum Bill McKibben til landsins. Hann heldur opinn fyrirlestur 5. maí.
Um 5.000 manns tók þátt í grænni göngu náttúruverndarhreyfingarinnar í gær 1. maí. Gangan endaði á því að 1.000 grænum fánum var stungið niður á Austurvelli við Alþingi.
Miðvikudaginn 1. maí verður græn ganga á vegum samtaka um náttúru- og umhverfisvernd. Gangan verður farin niður Laugaveg í kjölfar kröfugöngu verkalýðsfélaganna.
Um 75 manns sóttu aðalfund Landverndar 2013 sem haldinn var í Nauthóli í Reykjavík 13. apríl síðastliðinn.
Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna laugardaginn 13. apríl n.k. kl. 13-16 í sal veitingarstaðarins Nauthóls við Nauthólsvík. Sérstök athygli er vakin á erindum um Mývatn og Laxá.
Landvernd hefur sent Umhverfisstofnun athugasemdir sínar við drög að friðlýsingarskilmálum stækkunar friðlandsins í Þjórsárverum. Landvernd fagnar stækkuninni.
Landvernd tók þátt í að undirbúa stofnun hollvinasamtaka Kerlingarfjalla. Samtökin voru stofnuð 12. mars sl.
Ferðir með Landvernd og Ferðafélagi Íslands í sumar
Landvernd fer fram á að Skipulagsstofnun hafni tillögu Landsnets að matsáætlun um lagningu Kröflulínu 3 og láti jafnframt fara fram sameiginlegt umhverfismat 220kV raflínu frá Blöndustöð að Fljótsdal.
Landvernd hefur sent umhverfisráðherra bréf til að spyrja um svör íslenskra stjórnvalda við fyrirspurn Ramsarskrifstofunnar vegna mengunarhættu frá Bjarnarflagsvirkjun á lífríki Mývatns og Laxár.
Landvernd skorar á alþingismenn að ljúka umræðu um frumvarp til laga um náttúruvernd og kjósa um frumvarpið áður en þingi lýkur nú í vikunni.
Stjórn Landverndar undirstrikar nauðsyn þess að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir þegar ákvarðanir um stórframkvæmdir eru teknar. Þar skortir oft verulega á eins og Kárahnjúkavirkjun er skýrt dæmi um.
Landvernd hefur sent starfshópi umhverfis- og auðlindaráðherra ábendingar sínar varðandi stjórnunarfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs.
Landvernd stóð að sameiginlegri umsögn Kynningarátaks um erfðabreyttar lífverur vegna þingsályktunartillögu um bann við útiræktun erfðabreyttra lífvera
Landvernd og Stofnun Sæmundar fróða við HÍ efna til opins fundar um ný náttúruverndarlög í Norræna húsinu mánudaginn 18. febrúar kl. 20-22. Allir velkomnir.
Landvernd hefur sent umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis athugasemdir sínar við frumvarp til laga um ný náttúruverndarlög.
Landvernd telur að rökstyðja þurfi betur fjölda rannsóknaborholna sem HS Orka fyrirhugar í Eldvörpum. Samtökin hafa sent Skipulagsstofnun álit sitt á matsáætlun vegna framkvæmdarinnar.
Stjórn Landverndar hvetur stjórnvöld til að grípa til tafarlausra aðgerða í Kolgrafafirði vegna síldardauðans og að auknar verði rannsóknir á áhrifum fjarðaþverana á lífríki.
Landvernd stendur að áskorun félagasamtaka á arktískum svæðum til umhverfisráðherra á Norðurslóðum um að draga úr losun kolefnis í sóti (e. black carbon)
Auglýst er eftir verkefnum frá nemendum í 5.-10.bekk í samkeppninni um Varðliða umhverfisins
Fréttatilkynning frá LandverndSamþykkt þingsályktunartillögu á Alþingi um vernd og nýtingu landssvæða
Bjarki Valtýsson, lektor við Kaupmannahafnarháskóla flutti erindi sem fjallaði um félagsmiðla, svo sem facebook, og umhverfisvernd.
Einar Bergmundur Arnbjörnsson og Guðrún A. Tryggvadóttir fluttu erindið ,,Náttúran á umbrotatímum" og fjölluðu um vefinn náttúran.is og upplýsingamiðlun í umhverfismálum.
Akureyri vikublað tók viðtal við Guðmund Inga, framkvæmdastjóra Landverndar, vegna fyrirhugaðrar Bjarnarflagsvirkjunar við Mývatn.
Bjarki Valtýsson hjá Kaupmannahafnarháskóla og Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson hjá Natturan.is eru næstu fyrirlesarar í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins, 3. janúar n.k.
Kristján Jónasson og Sigmundur Einarsson jarðfræðingar fluttu erindið „Nýting jarðhita – Eru ráðgjafar á hálum ís?“ þar sem þeir gagnrýndu forsendur og vinnubrögð við ráðgjöf í jarðhitanýtingu á síðustu árum.
Í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins 21. nóvember fjallaði Shelley McIvor um breytingar á hegðun fólks og hvernig menntun, miðlun og þátttaka væru lykillinn að aukinni umhverfisvitund fólks.
Helena Óladóttir hélt fyrirlestur í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins þar sem hún fjallaði um menntun til sjálfbærni í aðalnámskrá grunn-, leik- og framhaldsskóla.
Landvernd vekur athygli á borgarafundi Hraunavina fimmtudagskvöldið 29. nóvember kl. 20 í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Hvetjum alla til að mæta
Stjórn Landverndar tekur undir áskorun aðalfundar Hraunavina til Alþingis um að fresta fjárveitingu til lagningar nýs Álftanesvegar eftir endilöngu Gálgahrauni.
Í tilefni af Nýtniviku efndi Fjölbrautarskólinn í Ármúla til sorpflokkunarkeppni og öttu nemendur skólans kappi við Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Einar Örn Benediktsson borgarráðsfulltrúa.
Landvernd sendi nýlega frá sér umsögn við tillögu nokkurra þingmanna að breytingu á lögum um vernd og orkunýtingu landssvæða.
Landvernd sendi nýlega frá sér umsögn við tillögu nokkurra þingmanna að breytingu á lögum um vernd og orkunýtingu landssvæða.
Landvernd sendi nýlega frá sér umsögn við tillögu nokkurra þingmanna að breytingu á lögum um vernd og orkunýtingu landssvæða.
Landvernd sendi nýlega frá sér umsögn við tillögu nokkurra þingmanna að breytingu á lögum um vernd og orkunýtingu landssvæða.
Næstu erindi í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins verða flutt af Shelley McIvor frá Global Action Plan í London og Helenu Óladóttur hjá Náttúruskóla Reykjavíkur þann 21. nóvember kl. 16-18.
Félagar í Ungliðaráði Landverndar sóttu norræna ráðstefnu ungliðahreyfinga í Osló í lok október. Ungliðarnir ályktuðu um loftslagsmál og sendu á ríkisstjórnir landanna.
Kvennaskólinn í Reykjavík flaggaði í dag fyrsta Grænfána sínum við hátíðlega athöfn. Landvernd óskar Kvennó innilega til hamingju með áfangann.
Landvernd og Franska sendiráðið á Íslandi efna til fyrirlestrar um menntun til sjálfbærrar þróunar í sal Arion banka (Þingvöllum) í Borgartúni 19, þann 6. nóvember kl. 14:30.
Ársfundur Kolviðar árið 2012 verður haldinn í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Lauganestanga 70, kl. 16:00 miðvikudaginn 31. október. Hugi Ólafsson flytur erindi um loftslagsbreytingar og tengingar við sjóði eins og Kolvið.
Framkvæmdastjóri Landverndar hélt fyrirlestur um mikilvægi náttúrunnar og náttúruverndar fyrir þróun og framtíð ferðaþjónustunnar og lagði sérstaka áherslu á hálendi Íslands
Fólk er almennt sammála um að herða þurfi refsingar við akstri utan vega og auka eftirlit með honum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri meistaraprófsritgerð Kristínar Þóru Jökulsdóttur er nefnist Akstur utan vega á Íslandi: Viðhorf og ástæður...
Landvernd og Norræna húsið hleypa af stokkunum fyrirlestraröðinni Frá vitund til verka um hugarfarsbreytingu í umhverfismálum miðvikudaginn 17. október kl. 16 í Norræna húsinu.
Stjórn Landverndar hefur sent stjórn Landsvirkjunar bréf þar sem farið er fram á að Landsvirkjun stöðvi nú þegar framkvæmdir fyrirtækisins við fyrirhugaða 45-90 MW Bjarnarflagsvirkjun.
Þann 25.september síðastliðinn skilaði Landvernd inn umsögn sinni til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi drög að frumvarpi til laga um náttúruvernd. Umhverfisrá&...