|
| Lög Landverndar |
Lög samtakanna Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands.
|
| |
|
|
| Hvað er Landvernd? |
Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi.
|
| |
|
| Hverjir eru í Landvernd? |
Að baki Landvernd standa tæplega 50 félagasamtök og fyrirtæki. Það má því líta á Landvernd sem regnhlífarsamtök. Fyrir nokkrum árum var opnað fyrir einstaklingsaðild og hafa um 500 einstaklingar skráð sig í samtökin.
|
| |
|
|