Ályktun vegna vegagerðar í Gufudalssveit

Teigsskógur er einstakt svæði þar sem náttúrulegur birkiskógur mætir fjöru, landvernd.is
Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls.

Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls. Þessi leið hefur verið samþykkt af Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra og því er ekkert til fyrirstöðu að ráðast í hana og bæta þannig strax úr brýnni þörf Vestfirðinga á betri samgöngum með láglendisvegi.
Með þessari úrslausn yrði komið í veg fyrir þau miklu náttúrspjöll sem myndu hljótast af leið B um óspillta náttúru, m.a. eftir Teigsskógi endilöngum og yfir eyjar og sker í mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar í nágrenni tveggja arnarsetra.

Ofangreind samtök telja óréttlætanlegt að fórna þessum náttúruverðmætum sem eru á náttúrminjaskrá og falla undir lög um verndun Breiðafjarðar, þar eð aðrar leiðir eru fyrir hendi. Göng undir Hjallaháls eru að öllum líkindum ódýrari en leið B þegar búið er að taka tillit til aukakostnaðar, jaðarkostnaðar og umhverfiskostnaðar.

Jóhann óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar, svarar fyrirspurnum fjölmiðla um ályktunina í síma 8920299 eða 5673540.

Kveðja,

Guðmundur Hörður Guðmundsson
formaður Landverndar

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd