Fjöldi fólks mótmælti með Landvernd á Austurvelli í dag

Fjöldi manns mótmælti með Landvernd á Austurvelli í dag. Verði þingsályktunartillagan samþykkt er rammaáætlunarferlið ónýtt. Aðalfundur Landverndar beinir því til Alþingis að falla þegar í stað frá tillögu meirihluta atvinnuveganefndar.

Fjöldi manns sótti mótmælafund Landverndar á Austurvelli í dag. Tilefnið er tillaga meirihluta atvinnuveganefndar um að færa fjórar virkjanir til viðbótar í virkjanaflokk rammaáætlunar án þess að nægilega faglega hafi verið staðið að málum. Um er að ræða virkjanir í neðrihluta Þjórsár og upp á hálendinu sjálfu, við Skrokköldu á Sprengisandi og Hagavatn sunnan Langjökuls.

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir starfmaður Landverndar skýrði fundinum frá stöðu mála á Alþingi. Tinna Eiríksdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur, Ósk Vilhjálmsdóttir hjá Hálendisferðum og Snorri Baldursson formaður Landverndar fluttu ávörp og Hemúllinn spilaði og söng nokkur lög.

Frummælendur mótmæltu því að tillaga meirihluta atvinnuveganefndar stæðist ekki lög. Virkjanahugmyndirnar sem um ræði hafi ekki hlotið fullnægjandi málsmeðferð sem lög mæla fyrir. Í lok fundarins færði Snorri Baldursson formaður Landverndar Jóni Gunnarssyni formanni atvinnuveganefndar Alþingis ályktun aðalfundar Landverndar, en fundurinn mótmælti harðlega umræddri þingsályktunartillögu meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis. Í ályktuninni segir m.a.: „Verði þingsályktunartillagan samþykkt er rammaáætlunarferlið ónýtt. Aðalfundur Landverndar beinir því til Alþingis að falla þegar í stað frá tillögu meirihluta atvinnuveganefndar og bíða  þess að verkefnisstjórn RÁ taki virkjanahugmyndirnar fimm fyrir í umfjöllun sinni í 3. áfanga RÁ. Vinna við umfjöllun verkefnisstjórnarinnar stendur nú yfir, en skila á niðurstöðum eftir rúmt ár.“

Lesa ályktun Landverndar um Rammaáætlun

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd