Aðalfundur Landverndar 13. maí n.k.

Karlmaður í forgrunni, heldur á grænum atkvæðaseðli upp í loftið. Aðalfundur Landverndar er haldinn ár hvert.
Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna 2017.

Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna laugardaginn 13. maí n.k. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Eftir fundinn verður hleypt af stokkunum nýju sjálfboðaliðaverkefni samtakanna í landgræðslu. Boðið verður upp á sætaferðir úr Reykjavík og eru félagsmenn hvattir til að taka allan daginn frá. Lagt verður af stað kl. 8:30 og fundurinn hefst kl. 10. Dagskrá og nánari tilhögun verður auglýst síðar. Samþykktir félagsins má finna hér.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd