Gönguhópur Landverndar fer á Helgafell á morgun

Gönguhópur Landverndar efnir til annarrarr göngu sinnar á laugardaginn kemur, 10. mars. Gengið verður á Helgafell í Hafnarfirði.

Gönguhópur Landverndar efnir til annarrarr göngu sinnar á laugardaginn kemur, 10. mars. Gengið verður á Helgafell í Hafnarfirði. Við hittumst við N1 í Hafnarfirði og leggjum af stað þaðan kl. 13. Það verður örugglega pláss í einhverjum bílum þaðan ef einhver ferðast með strætó. Gera má ráð fyrir að ferðin taki um þrjár stundir.

Allir velkomnir.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd