Grænlendingar dragi úr fuglaveiðum

Stöndum vörð um náttúru Íslands Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Landvernd virðir íslenska náttúru og styður sjálfbæra nýtingu hennar. Taktu afstöðu og vertu með! landvernd.is
Formaður og framkvæmdastjóri Landverndar sóttur árlegan fund norrænna náttúru- og umhverfisverndarsamtaka sem haldinn var í Finnlandi dagana 15. -17. ágúst. Á fundinum var m.a. fjallað um fuglaveiðar í Grænlandi.

Formaður og framkvæmdastjóri Landverndar sóttur árlegan fund norrænna náttúru- og umhverfisverndarsamtaka sem haldinn var í Finnlandi dagana 15. -17. ágúst. 

Á fundinum var m.a. fjallað um fuglaveiðar í Grænlandi, en fram hefur komið að veiðiálag er talsvert meira en tilteknir stofnar þola. Það var ákveðið að styðja kröfu grænlensku náttúruverndarsamtakanna UPPIKs þess efnis að veiðar á fuglum í Grænlandi á varptíma verði minnkaðar. Þá var einnig ákveðið að taka undir tillögur Evrópusambandsins um reglur um veiðarfæri sem miða að því að draga úr líkum á því að smáhveli eins og höfrungar og grindhvalir festist í veiðarfærum og drepist. 

Á fundinum var líka rætt um hvaða kröfur eigi að gera til svæða sem ákveðið er að fella undir þjóðgarða. Danir eru nú að kanna stofnun fyrstu þjóðgarða þar í landi og vegna þéttbýlis virðist ljóst að þjóðgarðar þeirra geti ekki uppfyllt þær kröfur sem gerða eru til þjóðgarða í Noregi, Svíþjóð og á Íslandi.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd