Hálendið – hjarta landsins

Verndum hálendið, verndum hjarta landsins. Hjartafell í Hofsjökli má sjá í baksýn, landvernd.is
Hálendið – hjarta landsins er yfirskrift verkefnis sem Landvernd hleypti af stokkunum í Þjórsárverum í dag. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands og gefa fólki kost á að taka undir kröfu Landverndar um að hálendinu verði hlíft.

Hálendið – hjarta landsins er yfirskrift verkefnis sem Landvernd hleypti af stokkunum í Þjórsárverum í dag. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands og gefa fólki kost á að taka undir kröfu Landverndar um að hálendinu verði hlíft.

Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu stjórnvalda um verndun víðerna hefur stöðugt verið gengið á þessi verðmæti. Enn eru uppi áætlanir um virkjanir, uppbyggða vegi og raflínur á hálendinu, til dæmis í grennd við Þjórsárver, við Hágöngur og Hagavatn, í Skaftá, Skjálfandafljóti og Jökulsánum í Skagafirði og á Kili og Sprengisandi. Að mati Landverndar er afar mikilvægt að stöðva þessa þróun og vernda sérstöðu hálendisins sem felst í lítt röskuðum svæðum, stórbrotnum andstæðum í landslagi og gróðurfari og einstökum möguleikum til náttúruupplifunar í óbyggðum.

Hjartað var valið sem tákn verkefnisins vegna þess að útlínur hálendisins mynda hjarta í grófum dráttum. 

 

,,Á meðan er okkar sæng upp reidd: Að verja hálendið, sjálft hjarta landsins, með ráð og dáð, sem sverð þess og skjöldur. Og annaðhvort verjum við það núna eða aldrei. Í húfi er æran, þín og mín; heiður allra Íslendinga."

Hjartað er gyllt til að tákna auðinn sem felst í óspilltu hálendi, bæði andlegum og efnislegum. Þá er hjartað myndað úr tveimur hlekkjum eða hringjum sem tákna tryggð við það sem okkur er kært.

Á mynd með grein er hópur á vegum Landverndar í Þjórsárverum með Hjartafell í baksýn.

Við Íslendingar eigum að varðveita víðernin sem við eigum

Ef við reynum að temja náttúruna missum við tengsl okkar við náttúruna sem siðverur

Hálendið er hjarta landsins, sem okkur ber að vernda, landvernd.is

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd