Hefur þú skipulagt strandhreinsun í ár?

Hefur þú skipulagt strandhreinsun í ár? Sendur okkur línu á hreinsumisland@landvernd.is

Hefur þú skipulagt strandhreinsun í ár?

Fjölmargir hafa skipulagt eigin strandhreinsanir í ár og viljum við hjá Landvernd halda því góða starfi á lofti. Með því að senda okkur upplýsingar um strandhreinsunina þína, verður hún sýnileg á Íslandskorti átaksins Hreinsum Ísland og í senn hvatning til annarra að taka til hendinni. ósk okkar er sú að sýna hversu margir hafa lagt hönd sína á plóg við að hreinsa strendur landsins og hafa um leið unnið gegn plastmengun í hafi.

Sendið okkur línu á hreinsumisland@landvernd.is og við skellum ykkur inn.

Upplýsingar sem skal senda:

  • Hreinsunarstaður
  • Hreinsunardagur
  • Fjöldi þátttakenda (ef upplýsingar liggja fyrir um það)
  • Magn þess rusls sem safnaðist (ef upplýsingar liggja fyrir um það)
  • Fannst eitthvað skrítið eða skemmtilegt í hreinsuninni?
  • 2-3 ljósmyndir frá hreinsuninni.

Project Image

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd