Landnámshænur setjast að í Alviðru

Alviðra í Ölfusi og Öndverðarnes eru einstakt útivistarsvæði þar sem hægt er að njóta náttúrulegs skógar og lífbreytileika.
Alviðra er umhverfisfræðslusetur Landverndar við Sogið í Ölfusi en þar var stofnað landnámshænsasetur er sex hænur og einn hani fluttu inn í nýuppgert hænsnabú í gamla mjólkurhúsi fjóssins í Alviðru þ. 26. september 2010.

Alviðra er umhverfisfræðslusetur Landverndar við Sogið í Ölfusi en þar var stofnað landnámshænsasetur er sex hænur og einn hani fluttu inn í nýuppgert hænsnabú í gamla mjólkurhúsi fjóssins í Alviðru þ. 26. september 2010.

Staðarhaldari í Alviðru er Guðrún A. Tryggvadóttir en hugmyndin er að mynda hóp félaga í Landvernd sem tæki að sér að hirða um dýrin og skipta með sér afurðum þeirra. Áhugasamir hafi samband við Guðrúnu. Sími 863 5490, netfang gunna@nature.is.
Markmið landnámshænsnasetursins er að efla fræðslustarfið í Alviðru og munu hænsnin án efa verða vinsæl hjá skólahópum sem heimsækja Alviðru ár hvert. Landnámshænsn er aðflutt dýrategund (eins og maðurinn) sem hefur aðlagast afbragðs vel íslensku umhverfi auk þess sem landnámshænsn eru afar vistvæn. Þær nýta vel lífræna afganga og verpa eggjum stútfullum af næringu. Hænsnaskíturinn er auk þess einn besti áburður sem völ er á.

Það er von okkar að sem flestir geti lært af okkar reynslu við að byggja upp hænsnabú án nokkurrar fyrri reynslu. Nýstofnuð Facebooksíða mun því vera einskonar dagbók landnámshænsnasetursins í Alviðru, með öllum þeim töpum og sigrum sem óhjákvæmilega fylgir öllum nýjum búskap. Sláið inn landnámshænsnasetur í leitardálk.

Öll góð ráð og innlegg eru velkomin frá reyndari hænsnabændum.

Ráðgjafi búsins er Jóhanna Harðardóttir í Hlésey formaður Eigenda- og ræktendafélags Landnámshænsna og heimasíða félagsins http://www.haena.is/.

Sjá nánar á facebooksíðu landnámshænsnasetursins í Alviðru.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd