 |
|
 |
|
 |
|
|
 |
| Í minningu Steingríms Hermannssonar |
| 9. febrúar 2010 - Landvernd |
Steingrímur Hermannsson lést 9. febrúar 2010. Hér á eftir eru minningarorð Björgólfs Thorsteinsson, formanns Landverndar:
Á aðalfundi Landverndar árið 2002 var lögð fram og samþykkt tillaga Umhverfisverndarsamtaka Íslands, sem stofnuð höfðu verið árið 1999, um að sameinast Landvernd. Rök Umhverfisverndarsamtaka Íslands fyrir sameiningunni voru einkum þau að starfsemi Landverndar hefði eflst mjög árin þar á undan, að Landvernd gegndi vel hlutverki sínu, og væri nú opin fyrir félagsaðild einstaklinga. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, sem verið hafði verndari Umhverfisverndarsamtakanna, féllst góðfúslega á að verða verndari Landverndar. Þrír stjórnarmenn Umhverfisverndarsamtakanna komu inn í stjórn Landverndar við sameininguna. Einn þeirra var Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra. |
| nánar -> |
 |
 |
 |
| 22. janúar 2010 - Grænfáninn |
| Tæplega 170 Skólar á grænni grein |
Níunda starfsár Skóla á grænni grein er nú hálfnað. Á annan tug skóla hefur bæst í hópinn það sem af er þessu skólaári og ekkert lát á umsóknum. Í upphafi skólaársins 2001-2002 voru tólf grunnskólar sem riðu á vaðið með þátttöku í verkefninu en nú eru skólarnir tæplega 170 á öllum skólastigum vítt og breitt um landið. Ríflega helmingur þessara skóla hefur hlotið alþjóðlegu viðurkenninguna Grænfánann fyrir sitt starf að umhverfismálum og umhverfismennt. |
| nánar -> |
 |
 |
 |
|
 |
|
| 12. janúar 2010 - Alviðra |
| Vorönn í Alviðru |
Vorönn 2009 í undirbúningi Undirbúningur er nú hafinn að vorönn í Alviðru og verður grunnskólum landsins sendur póstur á næstunni þar sem kynnt verður dagskrá vorannar í Alviðru. Vonir standa til að 2010 verði betra ár en það næst liðna, þegar mikill samdráttur varð í bókunum í kjölfar breyttra aðstæðna.Það virðist almennt álit kennara, skólastjórnenda, stjórnvalda, foreldra og nemenda að vettvangsferðir séu mikilvægur þáttur í starfi skóla. Því þarf að leita nýrra leiða til þess að þessi mikilvægi þáttur í starfi skólanna leggist ekki af. Margir samverkandi þættir hafa orðið til þess að skólar landsins hafa þurft að halda að sér höndum með ferðir nemenda.
izle
oyun
oyun
video
pes
youtube
bedava izle
izle
oyun
oyun ayni yer adana oto kiralama
|
| nánar -> |
|
 |
| 6. janúar 2010 - Landvernd |
| Nýr framkvæmdastjóri ráðinn til Landverndar |
Nú um áramótin tók Lárus Vilhjálmsson við starfi framkvæmdastjóra Landverndar. Lárus stundaði nám í ensku og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og fjármálastjórn við skóla bandaríska utanríkisráðuneytisins. Hann starfaði lengi hjá Menningarstofnun Bandaríkjanna og var í nokkur ár framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins. Lárus hefur mikla reynslu af félagsstörfum og stjórnun félaga og var um langt árabil formaður Leikfélags Hafnarfjarðar og í stjórn Bandalags íslenskra leikfélaga. Lárus hefur lengi verið ötull umhverfisverndarmaður og sagðist aðspurður hlakka mikið til að starfa fyrir Landvernd. „ Það eru mörg krefjandi og spennandi verkefni í umhverfismálum framundan og Landvernd mun leika stórt hlutverk í þeim. Ég held að reynsla mín geti nýst samtökunum vel og horfi bjartsýnn fram á veginn.“ Stjórn Landverndar býður Lárus velkominn til starfa. |
| nánar -> |
|
 |
|
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vorönn 2010 hefst 25. janúar með matjurtanámskeiði og sumarhúsanámskeiði í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Skráning og nánari upplýsingar í síma 578 4800 og á rit.is
|
 |
 |
|
|
|
 |
|
 |
 |
 |
 |
|
|