Áskorun gegn sprengisandslínu

Landsneti ber að tengja byggðir landsins en setur þjónustu við stóriðju í forgang með stóriðjulínum, höfnum stóriðju, landvernd.is
Landvernd hefur sett upp áskorun á vefnum þar sem almenningur getur tekið undir kröfuna um að Landsnet falli frá Sprengisandslínu og matsáætlun hennar verði hafnað af Skipulagsstofnun

Landvernd er umhugað um að búa til leiðir fyrir almenning til að taka þátt í ákvarðanatöku um umhverfismál í samfélaginu. Það er eitthvað sem Árósasamningurinn tryggir okkur öllum. Þess vegna hafa samtökin útbúið áskorun gegn áformum um Sprengisandslínu.

Landsnet hf. hefur lagt fram tillögu sína að matsáætlun fyrir umhverfismat 220 kV háspennulínu yfir Sprengisand (Sprengisandslínu). Skipulagsstofnun hefur tillöguna nú til umfjöllunar og hefur óskað eftir athugasemdum við hana í síðasta lagi 17. nóvember n.k. 

Áskorunin er eftirfarandi:

Ég skora á Landsnet hf. að falla þegar í stað frá áformum fyrirtækisins um Sprengisandslínu og krefst þess að Skipulagsstofnun hafni áætlun þess um umhverfismat línunnar.

Sprengisandslína myndi kljúfa landslagsheildir og víðerni miðhálendisins í tvennt, skerða upplifun ferðamanna og möguleika á útivist og ferðaþjónustu. Hálendið eins og við þekkjum það í dag, myndi tilheyra fortíðinni. Mun fleiri eru andvígir Sprengisandslínu (43%) en fylgjandi (25%) samkvæmt könnun Gallup í mars 2015. Kanna ber einnig aðrar línuleiðir en um Sprengisand.

Falli Landsnet ekki frá áformum sínum er það krafa mín að Skipulagsstofnun hafni matsáætlun Landsnets sökum verulegra annmarka á áætluninni, þ.m.t.:

– Landsnet gerir ekki ráð fyrir jarðstreng á hálendinu nema á 50 km kafla. Valkostur um jarðstreng alla leið er lágmarkskrafa í umhverfismati.

– Landsnet hefur neitað að veita almenningi aðgang að nýlegri sérfræðiskýrslu um jarðstrengi. Lágmarkskrafa er að upplýsingum sé hvorki haldið frá Skipulagsstofnun né almenningi. Landvernd hefur kært málið.

– Landsnet gerir ekki ráð fyrir að meta sameiginlega umhverfisáhrif Sprengisandslínu og háspennulína í byggð, frá Blöndu í Fljótsdal. Krefjast verður sameiginlegs umhverfismats.

– Landsnet byggir áætlun um Sprengisandslínu á raflínuáætlun (kerfisáætlun) frá 2014. Landvernd hefur krafist ógildingar á þeirri áætlun fyrir dómi.

Miðhálendið býr yfir fágætum verðmætum. Þar er hægt að upplifa lítt snortna náttúru og njóta einveru og kyrrðar. Ég vil halda í þessi verðmæti og mótmæli fyrirætlunum Landsnets um lagningu háspennulínu yfir Sprengisand.

Virðingarfyllst,“

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd