Hálendi Íslands er ómetanlegt, hvort sem er til fjár eða gildis fyrir íslensku þjóðina, landvernd.is

Orkunýtingarflokkur rammaáætlunar orðinn alltof stór. Umsögn um rammaáætlun 3

Landvernd telur nóg komið af virkjunarhugmyndum í orkunýtingarflokki og krefst þess að stjórnvöld hægi á virkjunaráformum.

Landvernd hefur sent Alþingi athugasemdir sínar vegna þingsályktunartillögu að flokkun virkjunarhugmynda í 3. áfanga rammaáætlunar, en áætlunin segir til um hvar megi virkja og hvar ekki. Landvernd leggur ríka áherslu á nauðsyn þess að hægja verulega á eða stöðva uppbyggingu frekari stórvirkjana hérlendis, a.m.k. þar til fyrir liggur ígrunduð orkustefna sem m.a. tiltekur hvað megi virkja mikið á næstu árum / áratugum og í hvaða tilgangi. Orkunýtingarflokkur hefur samkvæmt tillögunni að geyma 1421 MW sem er svipað og tvær Kárahnjúkavirkjanir. Fjölmörgum íslenskum náttúruperlum hefur þegar verið fórnað fyrir stóriðjuuppbyggingu. Landvernd fagnar verndun stórra vatnsfalla sem upptök eiga á hálendinu, eins og Skjálfandafljóts, Jökulsánna í Skagafirði og Skaftár. Samtökin mótmæla hinsvegar flokkun virkjanahugmynda í nýtingarflokk á hálendinu, Reykjanesskaga, austanverðum Vestfjörðum og víðar, t.d. Skrokkölduvirkjun á Sprengisandi. Ekki eru nægar forsendur fyrir því að flokka svo margar virkjunarhugmyndir í orkunýtingarflokk eins og tillaga umhverfis- og auðlindaráðherra gerir ráð fyrir.

Landvernd fagnar því að þremur stórum vatnasviðum, Héraðsvötnunum í Skagafirði, Skaftá og Skjálfandafljóti, er raðað í verndarflokk. Landvernd telur þó að fleiri svæði beri að setja í verndarflokk, ekki síst vatnasvið Hólmsár sem hlaut fjórða hæsta verðmætamatið í röðun faghópa rammaáætlunar. Vatnasvið Hvítár og jarðhitasvæðin á Krýsuvíkursvæðinu og í nágrenni Hengladala hljóta líka verðmætamatseinkunn yfir meðalgildi, en raðast samt ýmist í biðflokk eða nýtingarflokk. Landvernd telur að leiðrétta þurfi flokkun þessara svæða.

Það er mat Landverndar að sérstakt verðmæti (ómetanleiki) sé fólgið í verndun miðhálendis Íslands og möguleikum á stofnun þjóðgarðs. Þá séu ríkir almannahagsmunir fólgnir í verndun svæðisins með vísan til náttúruverndarlaga. Það sama gildi um Reykjanesfólkvang og mögulegt verndarsvæði í Hengladölum. Að mati Landverndar þarf að taka aukið tillit til þessara þátta við röðun virkjanahugmynda í þingsályktunartillögu um nýja rammaáætlun.

Landvernd leggur því sérstaka áherslu á að allar virkjunarhugmyndir inn á miðhálendi Íslands fari í verndarflokk og þar verði stofnaður þjóðgarður. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að vinna eigi sérstaka áætlun um vernd miðhálendisins og umhverfisráðherra hefur lýst því yfir að hún vilji stofna þar þjóðgarð. Hið minnsta ættu virkjunarhugmyndir á svæðinu sem í þingsályktunartillögunni eru settar í nýtingarflokk að færast í biðflokk á meðan stofnun þjóðgarðs er til skoðunar.

Landvernd gerir einnig verulegar athugasemdir við flokkun virkjunarhugmynda á Reykjanesskaga, en með þingsályktunartillögunni eru langflest svæði þar komin í nýtingarflokk. Allt eru þetta jarðvarmavirkjanir, en óvissa ríkir m.a. um sjálfbærni slíkra virkjana og langtíma heilsufarsleg áhrif brennisteinsvetnis. Nýleg doktorsritgerð hérlendis bendir til þess að þau áhrif gætu verið alvarlegri en áður var vitað. Þá er svæðið, ekki síst Reykjanesfólkvangur, vinsælt útivistarsvæði í næsta nágrenni stærsta þéttbýlissvæðis á Íslandi og á Reykjanesskaga má finna óbyggð víðerni sem er afar sérstætt í svo miklu návígi við þéttbýlt höfuðborgarsvæðið.

Landvernd gerir athugasemdir við flokkun Urriðafossvirkjunar og Holtavirkjunar í neðrihluta Þjórsár í orkunýtingarflokk, en að mati samtakanna skortir rannsóknir á samfélagslegum áhrifum þeirra og enn er mikil óvissa um áhrif þeirra á hinn stóra laxastofn sem í ánni finnst.

Landvernd gerir einnig alvarlega athugasemd við röðun Austurgilsvirkjunar í nýtingarflokk en ásamt Hvalárvirkjun sem þegar er í nýtingarflokki munu þessar virkjanir hafa mikil neikvæð áhrif á víðerni, vatnafar og ásýnd lands og eyðibyggða á austanverðum Vestfjörðum, líkt og nýlegt álit Skipulagsstofnunar á umhverfisáhrifum Hvalárvirkjunar staðfestir.

Ítarlega umsögn Landverndar má finna hér að neðan.

Lesa umsögn Landverndar um Rammaáætlun 3

3. áfangi rammaáætlunar

Rammaáætlun fjallar um orkunýtingu og verndun landsvæða. Hún skal byggja á vísindalegri þekkingu um hvert svæði og taka tillit til vistkerfa, lífríkis, landslagsheilda, jarðfræði, umhverfisáhrifa ...
Lesa meira

Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur

Landvernd styður hverja þá breytingu sem setur sjókvíaeldi stífari ramma og skorður sem minnka hættu á stórslysum fyrir íslenska náttúru og vistkerfi. Landvernd sendi Matvælaráðuneytinu ...
Lesa meira
Stakihnjúkur og Tungnaá sem rennur frá vesturhluta Vatnajökuls, Hálendi Íslands - Þjóðgarður landvernd.is

Óbyggðanefnd – breytingar á lögum

Mikilvægt er að traust ríki um leyfisveitingar og aðrar stjórnsýslulegar ákvarðanir á þjóðlendum. Almenningur verður að geta treyst því að þeir sem fara með slíkar ...
Lesa meira

3. áfangi rammaáætlunar

Rammaáætlun fjallar um orkunýtingu og verndun landsvæða. Hún skal byggja á vísindalegri þekkingu um hvert svæði og taka tillit til vistkerfa, lífríkis, landslagsheilda, jarðfræði, umhverfisáhrifa ...
Lesa meira

Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur

Landvernd styður hverja þá breytingu sem setur sjókvíaeldi stífari ramma og skorður sem minnka hættu á stórslysum fyrir íslenska náttúru og vistkerfi. Landvernd sendi Matvælaráðuneytinu ...
Lesa meira
Stakihnjúkur og Tungnaá sem rennur frá vesturhluta Vatnajökuls, Hálendi Íslands - Þjóðgarður landvernd.is

Óbyggðanefnd – breytingar á lögum

Mikilvægt er að traust ríki um leyfisveitingar og aðrar stjórnsýslulegar ákvarðanir á þjóðlendum. Almenningur verður að geta treyst því að þeir sem fara með slíkar ...
Lesa meira

Stuðningur við friðlýst svæði í Vatnsfirði

Mikill skaði myndi hljótast af virkjun á friðlýstu svæði í Vatnsfirði. Gott væri ef Orkubú Vestfjarða sem er að fullu í eigu ríkisins léti af ...
Lesa meira

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.