 |
|
 |
|
 |
|
|
 |
 |
| Vonarperlur sem orkufyrirtækin hafa horft til |
| 29. september 2007 - Landvernd |
 Vonarperlur Landvernd hefur undanfarin sumur staðið fyrir ferðum í samvinnu við Ferðafélag Íslands. Farið hefur verið á svæði sem orkufyrirtækin hafa horft til með það fyrir augum að anna þeirri eftirspurn eftir orku sem áform um frekari uppbyggingu á stóriðju hefur í för með sér. Leiðsögumenn í þessum ferðum hafa verið úr röðum fræðimanna og náttúruunnenda og hafa þeir í aðdraganda ferðanna boðið upp á fyrirlestra um náttúrufar og menningarminjar svæðanna. Þannig hafa ferðirnar verið blanda af hefðbundnum gönguferðum í anda Ferðafélagsins og fræðslufundum í anda þeirra sem Landvernd hefur staðið fyrir í gegnum tíðina.
Á liðnu sumri var farið að Langasjó, í Þjórsárver,á Ölkelduháls, Brennisteinsfjöll og Krýsuvík.Leiðsögumenn og framsögumenn í ferðunum voru Árni B. Stefánsson, hellakönnuður og augnlæknir, Björn Pálsson, héraðsskjalavörður, Gísli Már Gíslason, prófessor, Helgi Björnsson, prófessor, Sigþrúður Jónsdóttir, náttúrufræðingur, Snorri P. Snorrason, jarðfræðingur, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor, og þau Viktor Guðmundsson og Hildur Harðardóttir frá Leiðsögumönnum Reykjaness.
Ellert Grétarsson, ljósmyndari, var með í ferðum sumarsins og skráði með myndavél þær náttúruperlur sem horft er til og í húfi eru. Öll þessi svæði hafa að geyma dýrmætar perlur, náttúruperlur, sem okkur hefur verið treyst fyrir. Óvissa ríkir um framtíð þessara svæða. Enn er þó von og afar mikilvægt að sem flestir kynni sér áformin um örlög þeirra áður en það verður of seint. Með þetta fyrir augum hefur Landvernd fengið leyfi til þess að gera myndir Ellerts aðgengilegar almenningi og kunna samtökin honum bestu þakkir fyrir. Vonarperlurnar eru 68 glæsilegar myndir á 23 blaðsíðum sem er hægt að nálgast hér. Kæru landsmenn, njótið vel. Landvernd
 Hér er horft af hálsinum ofan við Seltún í átt til Austurengjahvers.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|
 |
 |
 |
 |
|
|