ji_frontimage03.jpg
Samtökin
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um Landvernd
English
Málefni
Reykjanesskagi
Langisjór
Alviðra
ÍslandsGátt
Hálendisvegir
Gjábakkavegur
Vatnajökulsþjóðgarður
Þjóðarblóm
Loftslagsverkefni
Árneshreppur
Ýmislegt
Lögverndarsjóður
Ýmsar greinar
Bækur - Bolir
Skrá netfang
Fjarlægja netfang

Fréttir
Vorönn í Alviðru
12. janúar 2010 - Alviðra

Vorönn 2009 í undirbúningi
Undirbúningur er nú hafinn að vorönn í Alviðru og verður grunnskólum landsins sendur póstur á næstunni þar sem kynnt verður dagskrá vorannar í Alviðru.
Vonir standa til að 2010 verði betra ár en það næst liðna, þegar mikill samdráttur varð í bókunum í kjölfar breyttra aðstæðna. Það virðist almennt álit kennara, skólastjórnenda, stjórnvalda, foreldra og nemenda að vettvangsferðir séu mikilvægur þáttur í starfi skóla.
Því þarf að leita nýrra leiða til þess að þessi mikilvægi þáttur í starfi skólanna leggist ekki af.
Margir samverkandi þættir hafa orðið til þess að skólar landsins hafa þurft að halda að sér höndum með ferðir nemenda.
1. Árið 2007 voru setta ný lög um gjaldfrjálsan grunnskóla þannig að óheimilt var að innheimta gjald vegna vettvangsferða nemenda, þetta hafði smátt og smátt þau áhrif að skólar sem áður höfðu treyst á fjárstuðning foreldra í þessu sambandi urðu að draga saman seglin hvað varðaði ferðalög nemenda.
2. Vegna stórhækkaðs eldsneytisverðs hefur kostnaður við ferðalög hækkað til muna.
3. Almennt efnahagsástand í samfélaginu og aukin krafa á sparnað í skólum landsins hefur enn dregið úr getu skólanna til að fara í vettvangsferðir með nemendur sína.
Mikilvægt er að finna lausn á þessum vanda þannig að börnum landsins gefist áfram kostur á að fara í vettvangsferðir með skólanum sínum, sér til fróðleiks og ánægju.
Það liggur e.t.v. beinast við er að foreldrafélög láti málið til sín taka og afli fjár til að styðja við slíkar ferðir á félagslegum grunni, t.d. með fjáröflun af einhverju tagi.
Æskilegt er að foreldrafélög taki þessa umræðu upp og reyni að brúa það bil sem skapast hefur, í þeirri trú að varanleg lausn finnist, þannig að hægt sé að standa við fyrirheit um gjaldfrjálsan skóla án þess að fella niður þann mikilvæga þátt sem vettvangsferðir eru.


Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: landvernd@landvernd.is