ji_frontimage.jpg
Grænfáninn
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um verkefnið
Stýrihópur
Þátttaka
Viltu komast á græna grein?
Skrefin sjö
Að sækja um Grænfána
Skólar á grænni grein
Annað efni
Alþjóðasamtökin
Alþjóðlegt tengslanet

Fréttir
Tæplega 170 Skólar á grænni grein
22. janúar 2010 - Grænfáninn

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti nemendum og starfsfólki leikskólans Furugrundar í Kópavogi Grænfánann fyrir hönd Landverndar í fyrsta sinn sl. sumar.


Níunda starfsár Skóla á grænni grein er nú hálfnað. Á annan tug skóla hefur bæst í hópinn það sem af er þessu skólaári og ekkert lát á umsóknum. Í upphafi skólaársins 2001-2002 voru tólf grunnskólar sem riðu á vaðið með þátttöku í verkefninu en nú eru skólarnir tæplega 170 á öllum skólastigum vítt og breitt um landið. Ríflega helmingur þessara skóla hefur hlotið alþjóðlegu viðurkenninguna Grænfánann fyrir sitt starf að umhverfismálum og umhverfismennt.

Í þónokkrum tilfellum hefur skólafólk viljað nýta sér vorið til þess að sækja um í fyrsta sinn eða endurnýja Grænfánann og fá hann afhentan. Er það vel. Til þess að allt gangi snuðrulaust fyrir sig þarf umsókn um Grænfána að hafa borist á netfangið graenfani@landvernd.is fyrir 1. mars nk. sé hugmyndin sú að flagga á komandi vori. Allar nánari upplýsingar um umsóknarferlið er að finna hér á heimsíðu Landverndar.



Frá fánaafhendingu í leikskólanum Steinahlíð vorið 2009. Björgólfur Thorsteinsson formaður Landverndar afhenti leikskólanum Grænfánann í þriðja sinn.
Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: graenfani@landvernd.is