 |
 |
Grænfáninn |
|
|
|
Þátttaka |
|
|
|
Annað efni |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
 |
|
|
Sameinu þjóðirnar munu halda alþjóðlega umverfisráðstefnu barna í Stavanger í Noregi dagana 17.-21. júní 2008. Ráðstefnan er kölluð Tunza 2008 og er ætluð börnum á aldrinum 10 – 14 ára sem eru áhugasöm og virk í umhverfismálum ásamt kennurum þeirra, foreldrum eða öðrum forráðamönnum. Búist er við um þúsund þátttakendum frá öllum heimshornum. Skráning á ráðstefnuna er þegar hafin. Hver fullorðinn þarf að vera með a.m.k. tvö börn og gert er ráð fyrir að í flestum hópum verði 2-6 börn ásamt forráðamanni. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni , (Application Form) og umsóknir um þátttöku þurfa að hafa borist fyrir 31. október. Frekari upplýsingar um ráðstefnuna eru á www.ua21.no/tunza. Íslendingar hafa áður sótt barnaráðstefnur S.þ. um umhverfismál. Þannig fór hópur frá Andakílsskóla alla leið til vesturstrandar Kanada á slíka ráðstefnu fyrir nokkrum árum. Guðlaug Erla, sem þá var skólastjóri þar og er nú aðstoðarskólastjóri Álftanesskóla, segir að ráðstefnan hafi verið ákaflega vel heppnuð og einstök upplifun Gaman væri að einhverjir íslenskir hópar sæju sér fært að fara til Noregs í sumar, enda ekki svo langt að fara, og við hér hjá Landvernd viljum gjarnan fá að fylgjast með.
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|