 |
 |
Grænfáninn |
|
|
|
Þátttaka |
|
|
|
Annað efni |
|
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
 |
| Að sækja um Grænfána |
 |
Umsókn og skýrsla Þegar skóli telur sig hafa tekið öll nauðsynleg skref að Grænfána sækir hann um að fá fánann. Fyllt er út sérstakt umsóknareyðublað og það sent til Landverndar ásamt skýrslu um starfið í skólanum. Í skýrslunni þurfa t.d. eftirfarandi atriði að koma fram:
1. Umhverfisnefndin Hvernig var valið í umhverfisnefndina, hverjir eiga þar fulltrúa, hversu oft er fundað, hverjar eru helstu ákvarðanirnar sem nefndin hefur tekið? Gott er að fá dæmi um fundargerðir.b
2. Mat á stöðu umhverfismála Hvernig var staða umhverfismála metin? Var fylltur út gátlistinn? Hverjir gerðu það? Gott er að fá afrit af útfylltum listanum jafnvel eins og hann var áður en hafist var handa og eins á þeim tíma sem sótt er um fánann.
3. Áætlun um aðgerðir og markmið Hvaða markmið voru sett? Hverjir settu markmiðin? Hvernig gekk að ná settum markmiðum?
4. Eftirlit og endurmat Á hvern hátt er litið eftir að skólinn haldi ótrauður áfram að settum markmiðum? Hefur staða umhverfismála verið metin að nýju eftir úrbætur?
5. Fræðsla Á hvern hátt eru nemendur fræddir um umhverfismál? Hafa t.d. verið þróuð sérstök námsverkefni um umhverfismál? Gaman væri að fá dæmi um slík.
6. Kynning á stefnunni Á hvern hátt hefur skólinn kynnt stefnu sína út á við, með kynningum, foreldrafundum, opnum húsum, útgáfu og fleiru? Hefur umhverfisstefna skólans haft áhrif út fyrir skólann sjálfan?
7. Umhverfissáttmálinn Skólinn þarf að hafa sett sér umhverfissáttmála og ákveðnar og skjalfestar starfsreglur hvað varðar umhverfismál. Hvernig var sáttmálinn unnin og þær reglur settar, hverjir tóku þátt í að setja þær og hvernig? Nauðsynlegt er að umhverfissáttmáli skólans fylgi með umsókn um Grænfána.
Umsókn skóla og skýrsla þarf að berast til Landverndar að minnsta kosti tveimur mánuðum áður en skólinn óskar eftir að fá fánann og í síðasta lagi fyrir 1. mars ef skólinn vill fá fánann í lok skólaárs.
 
Umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, afhendir Norðlingaskóla Grænfánann í júní 2007 (t.v.). Börn í leikskólanum Steinahlíð ánægð með árangurinn. (t.h.)
Mat, heimsókn og Grænfánahátíð a) Eftir að Landvernd hefur borist umsókn um afhendingu Grænfána les stýrihópur yfir gögn frá skólanum, metur hvort þau eru fullnægjandi og gerir tillögur um úrbætur ef þörf er á. Horft er á hvort skýrslan er heilsteypt og markviss, sýni þróun, segi frá því sem hefur gengið vel og illa og frá vandamálum og lausnum.
b) Fulltrúar úr stýrihópi Landverndar um Grænfána heimsækja síðan skólann, skoða hann og það starf sem þar hefur verið unnið. Heimsóknin hefst oftast á því að þeir ræða við fulltrúa umhverfishóps skólans og fara yfir umsókn og skýrslu skólans ásamt gátlista og meta hvernig til hefur tekist með að stíga skrefin sjö. Fulltrúarnir horfa ekki síst á hvort þátttaka í verkefninu virðist vera almenn í skólanum og hvort nemendur og aðrir sem að verkinu vinna séu þar vel virkir, sýni áhuga og hafi framtíðarsýn. Einnig hvort markmiðum hafi verið náð að mestu leyti en mikilvægt er að þau hafi í upphafi verið sett fram á skýran hátt og tiltölulega vel mælanlegan. Heimsækjendur vilja líka gjarnan sjá að umhverfisstefna skólans sé sýnileg þegar komið er inn í skólann og farið um hann, að þar megi sjá umhverfissáttmála og markmið skólans, verkefni nemenda í umhverfismálum o.fl.
c) Á fundi stýrihóps Landverndar um Grænfána er skipst á upplýsingum um skólana og metið og ákveðið hvort skilyrði séu uppfyllt og skólunum tilkynnt sú niðurstaða.
d) Skólar sem fá Grænfána ákveða í samráði við Landvernd hvenær afhendingin fer fram og skólinn sér um að skipuleggja og boða Grænfánahátíð.
e) Landvernd skrifar viðkomandi sveitarfélagi og tilkynnir um Grænfánaafhendinguna og óskar eftir að sveitarfélagið setji upp fánastöng við skólann ef hana vantar.
|
 |
|
 |
|