ji_frontimage07.jpg
Samtökin
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um Landvernd
English
Málefni
Reykjanesskagi
Langisjór
Alviðra
ÍslandsGátt
Hálendisvegir
Gjábakkavegur
Vatnajökulsþjóðgarður
Þjóðarblóm
Loftslagsverkefni
Árneshreppur
Ýmislegt
Lögverndarsjóður
Ýmsar greinar
Bækur - Bolir
Skrá netfang
Fjarlægja netfang

Ljósmyndakeppni Landverndar
Ljósmyndasýningin Augnablik í eldfjallagarði samanstendur af 24 völdum myndir úr ljósmyndakeppni Landverndar. Sýningin er í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Skólavegi 1 í Reykjanesbæ (sjá kort).

Alls bárust um 170 myndir í ljósmyndakeppni Landverndar og komust 24 þeirra í gegnum nálarauga dómnefndar. Þrjár myndir voru verðlaunaðar og hlutu verðlaun frá Bláa Lóninu, Icelandair og Opnum kerfum. Það voru þeir Arngrímur Sigmarsson, Tómasz Þór Veruson og Jóhann Óli Hilmarsson sem hlutu verðlaunin.


1. sætið, hlaut Jóhann Óli Hilmarsson, fyrir mynd af brotnum hveraleir og harðgerðri plöntu sem þröfngvar lífi sínu upp í gegnum gegnum sprungurnar í dauðum leirnum. Myndin er ákaflega hrífandi í fegurð sinni og grípur augu áhorfandans fyrir sterkan lit og skemmtilegt mynstur sem er dæmi um þá listasmíð sem móðir náttúra hefur tekið sér fyrir hendur og sjá má þegar maður staldrar við til að skoða hið smáa í náttúrunni.


2. stæðið, hlaut Tómasz Þór Veruson fyrir svarthvíta mynd sem þrátt fyrir einfaldleika sinn er full af hughrifum og stemmningu sem áhorfandinn á auðvelt með að upplifa. Myndin er í senn kraftmikil og mjúk. Hún er kyrrlát, draumkennd og dulúðug. Myndin kemur vel til skila þeirri friðsæld og fegurð sem fólk sækist eftir úti í náttúrinni. Myndbyggingin er einkar vel heppnuð með þaulhugsuðu sjónarhorni sem gefur myndinni fjarvídd og mikla dýpt. Hún er tekin við Kleifarvatn með Sveifluhálsinn í baksýn.



3. sætið, hlaut Arngrímur Sigmarsson fyrir óvenjulega mynd af Kleifarvatni. Skemmtilegt og öðruvísi sjónhorn á algengt myndefni; Kleifarvatn. Ákaflega fögur mynd, köld en samt hlýleg, kyrrlát og dulúðug í stemmningu næturkyrrðarinnar sem kemst vel til skila. Svo skemmtilega vill til að myndin er hluti af myndröð sem höfundur hennar vann til verðlauna fyrir á síðasta ári í einni stærstu ljósmyndasamkeppni heims, International Photography Awards. Það hlaut hann tvenn verðlaun fyrir nátturuljósmyndum í flokki áhugaljósmyndara.

Auk verðlaunamyndanna komust 21 aðarar myndir á ljósmyndasýninguna í Reykjanesbæ. Sýninging verður opin fram yfir Ljósanótt.


Ljósmyndari, Agnar Daníelsson.


Ljósmyndari, Arngrímur Sigmarsson.


Ljósmyndari, Arngrímur Sigmarsson.


Ljósmyndari, Bergljót Sigurbjörnsdóttir.


Ljósmyndari, Guðni Einarsson.


Ljósmyndari, Jóhann Óli Hilmarsson.


Ljósmyndari, Karl E. Kristjánsson.



Ljósmynd, Konstantín Shcherbak.



Ljósmynd, Konstantín Shcherbak.


Ljósmynd, Lárus Sigurðarson.


Ljósmynd María Björk Steinarsdóttir.


Ljósmynd, Olgeir Andrésson.


Ljósmynd, Olgeir Andrésson.


Ljósmynd, Olgeir Andrésson.


Ljósmynd, Páll Jökull Pétursson.


Ljósmynd, Sigrún Þorvarðardóttir.


Ljósmynd, Sigurður Ýmir Richter.


Ljósmynd, Skúli Þór Magnússon.


Ljósmynd, Skúli Þór Magnússon.


Ljósmynd, Tómasz Þór Veruson.


Ljósmynd, Þórdís Björnsdóttir.

Verðlaun voru frá, Opnum kerfum, Icelandair og Bláa lóninu.


Aðrir styrktaraðilar


Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: landvernd@landvernd.is