ji_frontimage10.jpg
Samtökin
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Um Landvernd
English
Málefni
Reykjanesskagi
Langisjór
Alviðra
ÍslandsGátt
Hálendisvegir
Gjábakkavegur
Vatnajökulsþjóðgarður
Þjóðarblóm
Loftslagsverkefni
Árneshreppur
Ýmislegt
Lögverndarsjóður
Ýmsar greinar
Bækur - Bolir
Skrá netfang
Fjarlægja netfang

Sumarferðir Landverndar um jarðhitasvæði sumarið 2010
Í sumar stendur Landvernd í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Hálendisferðir fyrir vettvangsferðum um jarðhitasvæði. 4. júlí verður gengið um Trölladyngjusvæðið. 24.-25. júlí verður boðið upp á tjaldferð í Kerlingarfjöll og 7.-9. ágúst skálaferð á Torfajökulssvæðið. Jarðfræðingarnir Sigmundur Einarsson og Kristján Jónasson leiðsegja hópunum.

Bókanir fyrir dagsferð í Trölladyngju 4. júlí eru hjá Ferðafélagi Íslands í síma 568 2533 eða sendast til fi@fi.is Sjá ferðaáætlun hér: www.fi.is

Bókanir í ferðirnar í Kerlingarfjöll og á Torfajökulssvæðið eru hjá Hálendisferðum í síma 864 0412 (9-17) og 561 4012 (kl. 9-14) eða sendast með tölvupósti til info@halendisferdir.is Nánari upplýsingar sjá: www.halendisferdir.is

Áfangastaðir Landverndar eiga það sammerkt að búa yfir einstakri náttúrufegurð, auk þess að vera álitnir gjöful orkuvinnslusvæði. Tilgangur ferðanna er að fræðast um jarðfræði þessara svæða, hugleiða möguleg áhrif orkuvinnslu og njóta um leið útivistar í einkar sérstæðri náttúru.
Til baka
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: landvernd@landvernd.is