Aðalfundur Landverndar 30. apríl kl. 13: Dagskrá og fundargögn

Karlmaður í forgrunni, heldur á grænum atkvæðaseðli upp í loftið. Aðalfundur Landverndar er haldinn ár hvert.
Aðalfundurinn verður haldinn 30. apríl kl. 13-17 að Túngötu 14 í Reykjavík

Stjórn Landverndar minnir á aðalfund samtakanna laugardaginn 30. apríl n.k. kl. 13-17 í sal Kvenfélagasambands Íslands að Hallveigarstöðum við Túngötu 14 í Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar, fundargögn og lög Landverndar má finna í viðhengjum hér að neðan.

Vakin er athygli á tillögu stjórnar Landverndar að ráðstöfun eignanna Alviðru í Ölfusi og Öndverðarness II í Grímsnesi. Þá mun stjórn samtakanna kynna afrakstur vinnu sinnar að áherslum Landverndar fyrir árin 2016-2017. Engar lagabreytingatillögur verða teknar fyrir á fundinum.

Í stjórn Landverndar sita tíu manns. Á aðalfundi 2016 verður kosið um fimm stjórnarmenn til tveggja ára. Allir kjörgengir félagsmenn geta boðið sig fram á fundinum. Þess má geta að fjórir stjórnarmenn hafa kosið að gefa ekki kost á sér áfram í stjórn samtakanna.

Við hvetjum ykkur til að mæta og hafa áhrif á stefnu og störf samtakanna. Þá minnum á að þau sem enn skulda félagsgjald verða að hafa greitt það fyrir aðalfund til að tryggja sér atkvæðisrétt og kjörgengi á fundinum. Jafnframt hvetjum við ykkur til að taka nýja félaga með á fundinn. Hægt er að greiða félagsgjöld á fundinum.

Vakin er athygli á því að Gunnar Hersveinn og Friðbjörg Ingimarsdóttir munu halda hugvekju í lok fundar.

Aðalfundi Landverndar lýkur að þessu sinni með samverustund félagsmanna og léttum veitingum.

Með von um að sjá ykkur sem flest,
f.h. stjórnar Landverndar,

Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar.

Aðalfundur Landverndar 2016
Laugardag 30. apríl kl. 13-17:00
Fundarsal Kvenfélagasambands Íslands
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík

Dagskrá

12:30 Húsið opnað, skráning

13:00 Setning aðalfundar og kjör fundarstjóra og fundarritara

13:10 Aðalfundarstörf

Kjör í nefndir fundarins
Kynning ályktana
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur 2015
Lagabreytingar
Ákvörðun félagsgjalds
Kosning skoðunarmanna reikninga Landverndar og Alviðrustofnunar
Kosning stjórnar

14:25 Kaffihlé

14:45 Ýmis málefni

Áherslur í starfi Landverndar 2016-2017
Tillaga um ráðstöfun eignanna Alviðru og Öndverðarness II
Afgreiðsla ályktana
Önnur mál

16:45 Gagnrýninn borgari

Gunnar Hersveinn og Friðbjörg Ingimarsdóttir flytja hugvekju.

17:00 Fundarslit og léttar veitingar

 

Gögn: Áherslur í starfi Landverndar 2016-2017. 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd