Dagskrá Alviðru sumarið 2013

Dagskrá Landverndar með fræðslu og gönguferðum í fallegu umhverfi Alviðru sumarið 2013.

Alviðra í Ölfusi

Dagskrá Landverndar með fræðslu og gönguferðum í fallegu umhverfi Alviðru sumarið 2013. Þátttaka ókeypis.
miðvikudagur 3. júlí
GANGA UPP Á INGÓLFSFJALL. Krefjandi ganga upp á Ingólfsfjall frá Alviðru, með glæsilegu útsýni yfir Suðurland. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur sér um leiðsögn. Farið af stað frá Alviðru klukkan 17. Tekur 3 klst.
laugardagur 6. júlí
GRASNYTJAR Í ALVIÐRU. Fræðsla og útivera í fögru umhverfi Alviðru fyrir alla fjölskylduna. Við lærum að þekkja nokkrar algengar íslenskar jurtir sem um aldir hafa verið nýttar í te, seyði, sem krydd og til matargerðar. Steinn Kárason annast dagskrána. Hefst klukkan 13. Tekur 2 til 3 klst.
miðvikudagur 10. júlí
GANGA UM ÖNDVERÐARNES. Létt ganga í fallegu umhverfi Sogsins. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur sér um leiðsögn. Farið af stað frá Alviðru klukkan 17. Tekur 2 klst.
laugardagur 17. ágúst
ALVIÐRUDAGUR. Náttúrufræðsla fyrir alla fjölskylduna á opnum degi í Alviðru. Hrefna Sigurjónsdóttir og Helena Óladóttir annast dagskrána.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd