Góð hljóðvist skiptir miklu máli þegar kemur að vellíðan nemenda og starfsfólks. Góð hljóðvist fellur undir lýðheilsuþema Grænfánaverkefnisins.
Eitt af þemum Grænfánaverkefnisins er Lýðheilsa. Vellíðan nemenda og starfsfólks skóla skiptir miklu máli og spilar hljóðvist þar stórt hlutverk. Hægt er að bæta hljóðvist með ýmsu móti en hér má lesa nokkrar ráðleggingar frá Kennarasambandi Íslands og SÍS.

Nokkrar góðar hugmyndir

Við höfum lært margt af úrræðagóðu starfsfólki Grænfánaskóla á Íslandi og er því um að gera að deila því með öðrum.
 
Í leikskólanum Sólborg í Reykjavík, sem er leiðandi í þjónustu fyrir börn með heyrnaskerðingu, er hljóðvist bætt meðal annars með því að setja tennisbolta undir stólfætur. Hljóðvist í leikskólanum batnaði til muna eftir að þar til gerðar hljóðdeyfandi plötur voru settar upp í almenningsrýmum leikskólans. Plöturnar eru léttar, ekki dýrar og þær má líma á veggi. Það þarf því ekki að kosta miklu til við að bæta starfs- og námsumhverfið.
Í leikskólanum Efstahjalla í Kópavogi er hljóðvist inni á deildum bætt með því að hafa svampdúk undir vaxdúkum á borðum. Þá glymur síður í borðbúnaði eða dóti sem börnin leika sér með.
 
Hægt er að mæla hávaða og gera hann sýnilegan með ýmsu móti. T.d. má mæla hávaða í matsal með desíbela mæli, en hægt að að hlaða niður ókeypis appi sem notar hljóðnemann í spjaldtölvum til að mæla hljóðstyrkinn. Sjá hér.
 
Inni á deildum og í kennslustofum, má gera æskilegan hljóðstyrk sýnilegan með sjónrænum skilaboðum. Til dæmis mætti ræða um hvernig hljóð á að vera í mismunandi vinnu í skólanum. Sjá fleiri hugmyndir hér.
 
Einnig má gera hljóð sýnilegt á skemmtilegan máta með skopparaboltum sem hoppa á skjá þegar hljóðstyrkur eykst. Sjá hér.
Síðan krefst ekki innskráningar en leyfa þarf aðgang að hljóðnema tölvunnar svo að síðan virki.
 
Við þiggjum ávallt góðar hugmyndir og snjallar ábendingar varðandi lýðheilsu á graenfaninn@landvernd.is