Hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador undirritar yfirlýsingu bláfánaveifunnar

Bláfánaveifan prýðir nú hvalaskoðunarskip Ambassador á Akureyri, en fulltrúi fyrirtækisins og Landverndar skrifuðu undir viljayfirlýsingu um umhverfisvæna starfsþætti fyrirtækisins.

Hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador á Akureyri skrifaði í dag, á Degi íslenskrar náttúru, undir viljayfirlýsingu um vistvæna umgengni og starfshætti. Fyrirtækið bætist því í hóp nokkurra hvalaskoðunarfyrirtækja hérlendis sem flagga bláfánaveifu.
Bláfánaveifan felur í sér að fyrirtæki gefur fyrirheit um að eigendur, skipstjórar og áhafnir hvalaskoðunarskipa einsetji sér að taka umhverfismál föstum tökum. Bláfánaveifan er ekki það sama og eiginlegur Bláfáni sem lýtur mun strangari reglum.
Landvernd býður Ambassador velkomin í hóp bláfánaveifuhafa. Hér má lesa meira um Bláfánaveifuna.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd