Verndum hálendið fyrir stóriðjulínum og virkjunum, náttúru Íslands er einstök á heimsmælikvarða, landvernd.is

Mótmælir Norðlingaölduveitu og háspennulínu í aðalskipulagi

Landvernd hefur sent Ásahreppi athugasemdir við lýsingu á aðalskipulagsbreytingu á Holtamannaafrétti. Samtökin gera alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.

Landvernd hefur sent Ásahreppi athugasemdir við lýsingu á aðalskipulagsbreytingu á
Holtamannaafrétti. Samtökin gera alvarlegar athugasemdir við
fyrirhugaðar breytingar. Hér á eftir fer samantekt helstu atriða og í
viðhengi er að finna umsögnina í heild sinni.

1.
Landvernd telur að Ásahreppur fari á sveig við lög nr. 48/2011 með því
að halda Norðlingaölduveitu inni á aðalskipulagi sem uppistöðulóni, en
hún tilheyrir verndarflokki í verndar- og orkunýtingaráætlun Alþingis.
Samkvæmt lögunum er ekki gert ráð fyrir því að virkjanir séu settar inn á
skipulagsáætlanir nema það samræmist flokkun áætlunarinnar. Þá ber
sveitarstjórnum að gera ráð fyrir friðun þeirra svæða sem eru í
verndarflokki áætlunarinnar. Í þessu tilfelli þýðir það að Ásahreppi ber
að gera ráð fyrir friðun svæðisins inni á skipulagi. Norðlingaölduveita
myndi spilla víðernum á hálendinu vestan Þjórsár og rennsli í fossum
árinnar, s.s. Dynk og Gljúfraleitafossi, myndi stórminnka.

2.
Landvernd mótmælir því að Ásahreppur hyggist setja legu 220kV
háspennulínu yfir Sprengisand inn á aðalskipulag, en slík framkvæmd
myndi hafa mikil sjónræn áhrif í för með sér. Samtökin benda á að
Landsnet hafi ekki gert skýra grein fyrir þörfinni á svo stórri línu,
auk þess sem kerfisáætlun Landsnets sem vitnað er til í lýsingu
Ásahrepps hefur ekki farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum áætlana.
Landvernd hefur áður líst því yfir að samtökin leggjast gegn lagningu
háspennulína yfir hálendið.

3.
Landvernd telur ekki tímabært að setja virkjanahugmyndir í biðflokki
verndar- og orkunýtingaráætlunar inn á skipulag fyrr en Alþingi hefur
sett fram nýja áætlun sem flokki þessar hugmyndir í verndar- eða
orkunýtingarflokk. Þetta á við um Skrokkölduvirkjun og virkjanir í og
við Hágöngulón, í jaðri Vatnajökulsþjóðgarðs.

4.
Landvernd gagnrýnir einnig að uppbyggðir heilsársvegir á Sprengisandi
skuli settir á aðalskipulag, en slíkar framkvæmdir myndu hafa mikil
sjónræn áhrif.

5. Landvernd gerir athugasemdir við að ekki sé gert ráð fyrir að meta áhrif aðalskipulagsbreytinganna á víðerni og ferðaþjónustu.

Lesa umsögn Landverndar

3. áfangi rammaáætlunar

Rammaáætlun fjallar um orkunýtingu og verndun landsvæða. Hún skal byggja á vísindalegri þekkingu um hvert svæði og taka tillit til vistkerfa, lífríkis, landslagsheilda, jarðfræði, umhverfisáhrifa ...
Lesa meira

Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur

Landvernd styður hverja þá breytingu sem setur sjókvíaeldi stífari ramma og skorður sem minnka hættu á stórslysum fyrir íslenska náttúru og vistkerfi. Landvernd sendi Matvælaráðuneytinu ...
Lesa meira
Stakihnjúkur og Tungnaá sem rennur frá vesturhluta Vatnajökuls, Hálendi Íslands - Þjóðgarður landvernd.is

Óbyggðanefnd – breytingar á lögum

Mikilvægt er að traust ríki um leyfisveitingar og aðrar stjórnsýslulegar ákvarðanir á þjóðlendum. Almenningur verður að geta treyst því að þeir sem fara með slíkar ...

Stuðningur við friðlýst svæði í Vatnsfirði

Mikill skaði myndi hljótast af virkjun á friðlýstu svæði í Vatnsfirði. Gott væri ef Orkubú Vestfjarða sem er að fullu í eigu ríkisins léti af ...
Lesa meira

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.