Rúm fyrir syfjaða bangsa

Gamlir mandarínukassar eru endurnýttir sem bangsarúm í Háaleitisskóla í Reykjavík

Það er ekki amalegt að geta endurnýtt mandarínukassa fyrir þreytta bangsa. Í Háaleitisskóla í Reykjavík endurvinna nemendur í 4. bekk mandarínukassa sem tæmdust um jólin. Krakkarnir sauma sér bangsa og útbúa rúm úr mandarínukassa, sem þeir skreyta og mála. Verkefnið er leitt af Fjólu Borg Svavarsdóttur grunnskólakennara. Hér má lesa frétt um verkefnið sem birtist í Fréttablaðinu þann 2. janúar sl. Sjá hér.

Við minnum á Grænfánaráðstefnu þann 10. febrúar.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd