Tíu ára afmæli Bláfánans á Íslandi

Í ár eru tíu ár liðin frá því að Landvernd innleiddi Bláfánaverkefnið á Íslandi. Verkefnið felst í því að veita rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda viðurkenningu fyrir vistvæna starfshætti og þjónustu sem stuðlar að verndun umhverfisins við sjóinn.

Í ár eru tíu ár liðin frá því að Landvernd innleiddi Bláfánaverkefnið á Íslandi. Verkefnið felst í því að veita rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda viðurkenningu fyrir vistvæna starfshætti og þjónustu sem stuðlar að verndun umhverfisins við sjóinn. Um er að ræða viðurkenningu í formi fána sem ætlað er að vekja verðskuldaða athygli á því að handhafinn uppfylli kröfur Bláfánans og beri þannig hag almennings og umhverfis fyrir brjósti í umgengni sinni við sjóinn.
Fyrstu handhafar Bláfánans á Íslandi voru Stykkishólmshöfn og Hafnarhólmahöfn á Borgarfirði eystri , ásamt Bláa lóninu og Ylströndinni í Nauthólsvík. Alls hafa sex rekstraraðilar smábátahafna og baðstranda tekið þátt í verkefninu, auk hvalaskoðunarfyrirtækjanna Eldingar, Norðursiglingar og Sérferða.
Verkefnið á rætur að rekja til hóps áhugamanna í Frakklandi sem sá ástæðu til að bæta umgengni sjófarenda, rekstraraðila og baðgesta við sjóinn í byrjun 9. áratugarins. Skömmu síðar tók síðan Foundation for Environmental Education (FEE) þetta góða verkefni upp á arma sína og er nú svo komið að 3650 staðir í 46 löndum flagga fánanum. Þess má geta að FEE rekur einnig Grænfánaverkefnið.
Bláfáninn er útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum og Landvernd því mikið í mun að efla verkefnið hér.
Hægt er að fá upplýsingar um verkefnið hjá verkefnisstjóra, Sigrúnu Pálsdóttur, í síma 866 9376 og er umsóknarfrestur fyrir starfsárið 2012 til 25. febrúar næstkomandi.

Umsóknir um Bláfánann 2012:
Umsókn um Bláfánann fyrir smábátahafnir
Umsókn um Bláfánann fyrir baðstrendur

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd