Nýjum Álftanesvegi um Gálgahraun mótmælt

Mosi er verndaður með náttúruverndarlögum, landvernd.is
Aðalfundur Landverndar 13. apríl 2013 sendi frá sér ályktun þar sem lagningu nýs Álftanesvegar um Gálgahraun var mótmælt harðlega og lagt til að Búrfellshraun yrði friðað í heild sinni.

Aðalfundur Landverndar 13. apríl 2013 sendi frá sér ályktun þar sem lagningu nýs Álftanesvegar um Gálgahraun var mótmælt harðlega og lagt til að Búrfellshraun yrði friðað í heild sinni:

Aðalfundur Landverndar 2013 mótmælir harðlega áformum Vegagerðarinnar og bæjaryfirvalda í Garðabæ að hefja framkvæmdir við gerð nýs Álftanesvegar yfir ósnortið Gálgahraunið nú strax í vor enda er umhverfismat og framkvæmdaleyfi úrelt. Landvernd skorar á framkvæmdaraðila nýs Álftanesvegar, að fresta undirritun verksamnings við Íslenska aðalverktaka þar til fyrir liggur fullnægjandi úttekt á núverandi vegstæði í samræmi við svokallaða núlllausn samkvæmt lögum. Landvernd minnir á að eldhraun eins og Gálgahraun njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum. Samtökin leggja eindregið til að allt Búrfellshraun verði friðað sem allra fyrst, en ekki aðeins hlutar hraunsins eins og nú er.

Greinargerð
Gálgahraun er um margt sérstakt á heimsvísu. Það er ysti hluti Búrfellshrauns sem myndar einstaka hraunheild frá gígnum Búrfelli og til sjávar gegnt Bessastöðum. Fjöldi fornra leiða liggja um hraunið og þar er að finna margvíslegar búsetuminjar. Í hrauninu er fjölbreytt fuglalíf og gróður og sem heild er Gálgahraun afar verðmætt útivistarsvæði fyrir þéttbýlið á suðvesturhluta landsins. Það gildi vex með hverju árinu.

Ekkert hefur komið fram sem gerir endurbætur á núverandi vegi yfir hraunið að lakari kosti en nýr vegur yfir ósnortið hraun. Umhverfismat sem gert var á sínum tíma er orðið meira en tíu ára gamalt og því útrunnið sem og framkvæmdaleyfi.

Lesa áskorun Landverndar

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd