ji_frontimage10.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Hvað er Vistvernd í verki?

Vistvernd í verki er alþjóðlegt samfélagsverkefni sem leiðbeinir þátttakendum í leit þeirra að sjálfbærum lífsstíl og samfélagi. Þátttaka í námskeiði Vistverndar í verki (þátttaka í visthópi) er afar árangursrík leið til að taka upp vistvænni lífsstíl. Lögð er áhersla á einfaldar breytingar á lífsstíl og að þátttakendur velji aðgerðir og breytingar sem þeim finnst áhugaverðar. Þegar talað er um að verkefnið snúist um sjálfbæran lífsstíl er meðal annars vísað til þess að unnið er að betri nýtingu auðlinda og minni mengun en einnig til þess að, á sama tíma er horft til fjármála heimilisins, heilsu, vellíðan og virkri þátttöku í samfélaginu.

Verkefnið er hið eina sinnar tegundar í heiminum og rannsóknir og reynsla sýna að það skilar miklum og varanlegum árangri í bættri umhverfismeðvitund og hegðun. Hátt í 1000 heimili hafa nú þegar tekið þátt í verkefninu á Íslandi og milljónir manna í um 20 löndum víða um heim.

Ísland er eitt af þeim 20 löndum sem verkefnið hefur fest rætur í. Alþjóðlegt heiti verkefnisins er GAP, en það stendur fyrir Global Action Plan for the Earth. Verkefnið er sannkallað grasrótarstarf og fellur því afar vel að áformum stjórnvalda um sjálfbæra þróun og virka þátttöku íbúa í lýðræðissamfélagi (staðardagskrá 21).

Hvað gera visthópar?
Vistvernd í verki byggist á hópstarfi þar sem fulltrúar 5 til 8 heimila koma saman til 7 fræðslufunda á um 12 vikna tímabili. Hverjum hópi er fylgt eftir af þjálfuðum leiðbeinandi og allir þátttakendur fá handbók og vinnubók þar sem finna má góð ráð og skrá árangur starfsins. Leiðbeinandi stýrir fyrsta og síðasta fundi en þess á milli starfar hópurinn sjálfstætt en með stuðningi leiðbeinanda.
Í bókinni eru tekin fyrir fimm viðfangsefni; sorp, orka, samgöngur, innkaup og vatn. Fundirnir eru notaðir til að fara yfir ýmis atriði í rekstri heimilisins og til að finna leiðir til úrbóta. Hver fundur er helgaður einu viðfangsefni og tekur að hámarki tvær klukkustundir.

Taka þátt í visthópi - smellið hér til að skrá ykkur

Samspil við náttúruna
Náttúran er uppspretta lífsgæða okkar. Maðurinn lifir í og af náttúrunni. Til að stuðla að því að sambýli okkar við náttúruna gangi vel þarf að sýna tillitsemi í umgengni við hana, fara vel með auðlindirnar og takmarka mengun. Eðlilega spyrja margir hvað þeir geti gert til að stuðla að hreinna og betra umhverfi. Svarið liggur ekki alltaf í augum uppi. En það er ýmislegt hægt að gera.

Með ýmsum einföldum breytingum á daglegu lífi má gera lífsstíl vistvænni án þess að draga úr lífsgæðum. Og margt smátt gerir eitt stórt. Með víðtækri þátttöku í slíkum aðgerðum má ná miklum umhverfislegum ávinningi. Vistvernd í verki er tæki til að koma þessu til leiðar. Reynslan sýnir að vistvænir lífshættir leiða einnig til fjárhagslegs sparnaðar, bæði fyrir samfélagið sem og þær fjölskyldur sem í hlut eiga.

Bakhjarlar

Á hægri spássíu er hnappur merktur Bakhjarlar. Ef smellt er á hann sjást bakhjarlar Vistverndar í verki og hægt er að tengjast inná heimasíður þeirra. Fulltrúar Landverndar og Vistverndar í verki kunna bakhjörlum miklar þakkir fyrir stuðninginn við mikilvægt grasrótarstarf.

Árin 2007-2008: Umhverfisráðuneytið, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, SORPA, Sorpstöð Suðurlands, Fura, Hringrás og Úrvinnslusjóður.

Árið 2006: Umhverfisráðuneytið, SORPA, Landsvirkjun, Sorpstöð Suðurlands, Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja, Úrvinnslusjóður, Fura, Hringrás, Tæknival, Yggdrasill, Brauðhúsið í Grímsbæ, Maður lifandi, Servida og Bio-bú.

Árið 2005: Umhverfisráðuneytið, Toyota, Landsvirkjun, SORPA, Tæknival, Yggdrasill, Dýrabær og Brauðhúsið í Grímsbæ.

Árin 2002-2004: Umhverfisráðuneytið, SORPA, Landsvirkjun, Toyota, Fjarðarkaup og Orkuveita Reykjavíkur.

Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is