ji_frontimage4.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Fréttir
Vistverndarfólk rifjar upp leiðbeinendatakta
28. september 2009 - Vistvernd í verki
Við hjá Vistvernd í verki höfum mikinn hug á að halda uppi öflugu visthópastarfi. Fjöldi fólks er nú á biðlista eftir að komast í visthóp og vantar okkur því leiðbeinendur. Sumir hafa kvartað yfir því að vera farnir að ryðga í fræðunum. Til að ráða bót á því höfum við því ákveðið að bjóða upp á örnámskeið og spjall fyrir leiðbeinendur Vistverndar í verki mánudaginn 5. október kl. 20.00 hjá Sirru í Farfuglaheimilinu í Laugardal.
Bryndís Þórisdóttir, áður verkefnisstjóri hjá Vistvernd í verki, stýrir spjallinu og rifjar upp fræðin.
nánar ->
Viltu gerast leiðbeinandi hjá Vistvernd í verki?
9. september 2009 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki leitar að öflugu vistverndarfólki til að hjálpa til við að innleiða lífsstíl sem sparar bæði orku og peninga og um leið bætir umgengni við móður Jörð. Áhugasömum býðst að taka þátt í 20 tíma námskeiði fyrir leiðbeinendur 30. október til 1. nóvember.
Á námskeiðinu læra þátttakendur listina að leiðbeina. Farið verður í gegnum helstu verkefni leiðbeinandans, s.s. að stýra fundum, kveikja áhuga, vinna saman í hóp og miðla fróðleik.
nánar ->
Safnhaugur að hætti Nikulásar
11. mars 2009 - Vistvernd í verki
Einföld og skilvirk leið fyrir lífrænan úrgang er að grafa hann niður. Undir yfirborðinu eiga rætur, maðkar og aðrar lífverur greiða leið um hauginn og vinna sitt verk eins og náttúran býður þeim. Öllum lífrænum úrgangi frá heimilinu og úr garðinum er hent í hauginn. Einnig er gott að setja með pappír, t.d. eldhúspappír, te og kaffipoka o.fl.
nánar ->
Jólagjöf sem gefur ...
18. desember 2008 - Vistvernd í verki
Flestir eru sammála um að jólahátíðin eigi að einkennast af gleði, hlýju og náungakærleika. Með smá umhugsun getum við auðveldlega gert góðverk um jólin, t.d. með því að vanda val á jólagjöfum og gefa það sem gleður bæði gefanda og þiggjanda, auk þess að bæta lífsskilyrði á jörðinni.
nánar ->
Lærum að stjórna ferðinni sjálf
9. október 2008 - Vistvernd í verki
Um síðustu helgi héldu brautryðjendur GAP í Evrópu námskeið fyrir vistverndarfólk á Sólheimum í Grímsnesi. Tilgangurinn með námskeiðinu var að blása lífi í visthópastarf víðsvegar um land og kynna til sögunnar vinnustaðaverkefni GAP.
Skemmst er frá því að segja að námskeiðið var afar lærdómsríkt og ljóst að fólk hefur fullan hug á að vinna áfram að visthópaverkefninu á Íslandi.
nánar ->
Námstefna Vistverndar í verki 3.-5. október á Sólheimum í Grímsnesi
14. september 2008 - Vistvernd í verki
Landvernd hefur nú fengið brautryðjendur Vistverndar í verki í Evrópu til liðs við sig og mun standa fyrir námstefnu í vistvernd í verki á Sólheimum í Grímsnesi dagana 3.-5. október nk. Tilgangurinn með námskeiðinu er að efla starf Vistverndar í verki á Íslandi með hjálp frumkvöðlanna, þeirra Marilyn og Alexanders Mehlmann frá Svíþjóð og Peters van Luttervelt frá Hollandi.
nánar ->
Neyslurannsókn
20. maí 2008 - Vistvernd í verki
Rannsóknin leiddi meðal annars í ljós að Íslendingar sóa töluverðum verðmætum á hverju ári. Þó nokkuð af matvælum virðist fara til spillis á heimilum af ýmsum ástæðum. Einnig virðast Íslendingar eyða peningum sínum í hluti sem eru lítið sem ekkert notaðir og lenda margir þeirra í ruslinu.
nánar ->
Vistvænn lífsstíll
25. apríl 2008 - Vistvernd í verki
Önnur útgáfa af upplýsingariti Vistverndar í verki, Skref fyrir skref, hefur nú litið dagsins ljós. Landvernd og Umhverfisráðuneytið standa fyrir útgáfunni.
nánar ->
Vistvernd í verki á Sólheimum
25. janúar 2008 - Vistvernd í verki
Starfsmenn Landverndar fóru að Sólheimum í Grímsnesi til að kynna umhverfis- átakið Vistvernd í verki. Góð mæting var á fundinn í umhverfissetrinu Sesseljuhúsi. Í kjölfar kynningarinnar voru stofnaðir tveir visthópar. Í þeim eru fulltrúar 13 heimila á Sólheimum eða 25 af 100 íbúum Sólheima. Þátttaka íbúa í hópastarfi Vistverndar í verki er því um 25%.
nánar ->
Óefnislegar gjafir - vistvæn ánægja
18. desember 2007 - Vistvernd í verki
65% svarenda í neyslukönnun kannast við að hafa, af tillitsemi við gefnandann, ekki skipt gjöf sem þeir hafa ekki haft not fyrir. Hlutir sem eru framleiddir til þess eins að verða engum að gagni eru hlutir sem valda óþörfu umhverfisálagi.
nánar ->
Vistvæn jól
4. desember 2007 - Vistvernd í verki
Hátíð ljóss og friðar, ys og þys, hlaup og kaup, tveir fyrir einn og vonandi verða þeir báðir ánægðir með plastið. Þeir hljóta að kunna að meta þetta, plastið er jú komið alla leið frá Asíu og svo kemur lag þegar maður ýtir á takkann. Skyldu þeir e.t.v. heldur vilja fá eitthvað annað? Hvað um námskeið í hljóðfæraleik, leikhúsferð, aðild að Landvernd eða miða á tónleika?
nánar ->in english ->
Vistvernd í verki í Borgarbyggð
27. september 2007 - Vistvernd í verki
Átján fjölskyldur hafa skráð sig til þátttöku í Vistvernd í verki í Borgarbyggð. Í hverjum hópi er gert ráð fyrir fulltrúum 5-8 fjölskyldna. Á haustmisseri verða því a.m.k. tveir hópar.
nánar ->
Vistvernd í Borgarbyggð
4. júlí 2007 - Vistvernd í verki
Borgbyggð varð aðili að Vistvernd í verki. Undirritunin fór fram í Borgarnesi laugardaginn 23. júní. Stefnt er að því að fyrsti hópurinn taki til starfa í byrjun september og eru áhugasamir hvattir til þess að skrá sig í Ráðhúsi sveitarfélagsins.
nánar ->in english ->
Fundur leiðbeinenda Vistverndar í verki
4. júní 2007 - Vistvernd í verki
Föstudaginn 25. maí var haldinn vorfundur leiðbeinenda og stjórnenda Vistverndar í verki af öllu landinu. Vistvernd í verki er starfrækt í 18 sveitarfélögum víðsvegar um landið...
nánar ->
Vistvernd í verki heimsækir SORPU
3. júní 2007 - Vistvernd í verki
Þátttakendum Vistverndar í verki var boðið í fræðsluheimsókn til SORPU nú fyrir skömmu. Gyða S. Björnsdóttir, kynningar- og fræðslufulltrúi SORPU ...
nánar ->in english ->
Starfsfólk hjá Eflingu útskrifast úr Vistvernd í verki
22. maí 2007 - Vistvernd í verki
Starfsfólk hjá stéttararfélaginu Eflingu útskrifaðist úr visthópi í dag og tók við viðurkenningarskjölum og ...
nánar ->
Átakið Hjólað í vinnuna hafið
2. maí 2007 - Vistvernd í verki
570 lið frá 270 fyrirtækjum hafa skráð sig til leiks í Hjólað í vinnuna sem hófst í dag. Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið að heilsu- og hvatningarátakinu ...
nánar ->
Skref fyrir skref á degi umhverfisins
26. apríl 2007 - Vistvernd í verki
Landvernd og umhverfisráðuneytið gefa saman út ritið Skref fyrir skref. Ritið byggir á norskri fyrirmynd Bit for bit sem Grönn hverdag gaf út. Ritinu er ætlað ...
nánar ->
Hópur kennara og skólastjóri Víkurskóla útskrifast úr visthópi
13. apríl 2007 - Vistvernd í verki
Víkurskóli í Grafarvogi er Grænfánaskóli og þar fer fram öflugt umhverfisstarf. Fyrir skömmu tóku 6 kennarar og skólastjóri skólans þátt í ...
nánar ->
Sigurliðið á Fljótsdalshéraði
16. mars 2007 - Vistvernd í verki
Í tengslum við sýningu Vistverndar í verki, fór í vetur fram getraun í Safnahúsinu á Egilsstöðum. Þátttakendur í getrauninni voru bæði grunnskólanemendur ...
nánar ->
Vistvernd í verki í Eyjum
7. mars 2007 - Vistvernd í verki
Vestmannaeyja- bær og Landvernd hafa skrifað undir samstarfs- samning um verkefnið Vistvernd í verki. Vestmannaeyjar bætast því í hóp 18 ...
nánar ->
Vistverndarmánuður í Hafnarfirði
16. febrúar 2007 - Vistvernd í verki
Þema þessa mánaðar í staðar- dagskrárstarfi Hafnarfjarðar er Vistvernd í verki. Í dagatali sem Hafnarfjarðarbær sendi bæjarbúum í byrjun árs er ...
nánar ->
Kaupa ekkert í tvo mánuði
29. janúar 2007 - Vistvernd í verki
Þrettán manna hópur í Laugarnesskóla fetar nú í fótspor Compact hópsins í Los Angeles og hafa strengt þess heit að kaupa ekkert í tvo mánuði (19. janúar - 19. mars). Þau kalla ...
nánar ->
Fulltrúar framtíðarinnar á Fljótsdalshéraði
22. desember 2006 - Vistvernd í verki
Sýning Vistverndar í verki fékk góðar viðtökur í Safnahúsinu á Egilsstöðum í nóvember. Gestir og gangandi gátu tekið þátt í getraun og svöruðu spurningum um vistvænan lífsstíl. ...
nánar ->
Margfaldur ávinningur af hjólreiðum
19. desember 2006 - Vistvernd í verki
Margfalur ávinningur fylgir því að hjóla í vinnuna eða í skólann. Það er fjárhagslega hagkvæmt, það eflir heilsuna, er umhverfisvænt og léttir lund. Í fréttabréfi frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands ...
nánar ->
Jólagleði
1. desember 2006 - Vistvernd í verki
Desember mánuður er hafinn. Setningar sjá og heyrast eins og ,,átök jólanna", ,,jólastress", ,,neysluhátið" og ...
nánar ->
Vistvernd á Fljótsdalshéraði
24. nóvember 2006 - Vistvernd í verki
Á Fljótsdalshéraði hafa 30 heimili tekið þátt í verkefninu Vistvernd í verki á undanförnum árum og er verkefnið í miklum blóma um þessar mundir...
nánar ->
Kaupum ekkert dagurinn
22. nóvember 2006 - Vistvernd í verki
,,Kaupum ekkert dagurinn" er alþjóðlegt átak gegn vaxandi neyslu vestrænna ríkja. Dagurinn er haldinn ár hvert, á síðasta laugardegi nóvembermánaðar, að þessu sinni 25. nóvember. Dagurinn er haldinn að frumkvæði Adbusters í Kanada og var haldinn fyrst árið 1992.
Tilgangurinn er að beina ...
nánar ->
Sanngjörn neysla
9. nóvember 2006 - Vistvernd í verki
Ný norsk heimasíða hefur verið opnuð sem gefur upplýsingar fyrir neytendur um sanngjarna eða siðræna neyslu. Etiskforbruk.no gefur neytendum ábendingar um ...
nánar ->
Val á vetrardekkjum
19. október 2006 - Vistvernd í verki
Val á dekkjum undir bílinn hefur áhrif á umhverfið á ýmsan hátt. Flestir vita að nagladekk valda svifriki með því að tæta upp malbik en sennilega eru mun færri sem vita að það er fleira sem skiptir máli við val á dekkjum. Þessi ráð um val á ...
nánar ->
Kynningarfundur um Vistvernd í verki
16. október 2006 - Vistvernd í verki
Þriðjudagskvöldið 17. október kl. 19:30 heldur visthópurinn ,,Kál og kenning” úr Reykjavík kynningarfund um Vistvernd í verki hjá Maður lifandi, Borgartúni 24.
Einkunnarorð hópsins eru: Byltingin byrjar í bakgarðinum!
Hópurinn býður öllum áhugasömum að koma og gleðjast með sér því ...
nánar ->
Leiðbeinendanámskeið hjá Vistvernd í verki
9. október 2006 - Vistvernd í verki
Dagana 13. og 14. október verður haldið leiðbeinendanámskeið hjá Vistvernd í verki. Kennt verður kl. 13:30-19:00 á föstudag og 10:00-17:00 á laugardag. Nemendur fá á námskeiðinu góða innsýn ...
nánar ->
Áratugur menntunar til sjálfbærrar þróunar
25. september 2006 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki hefur fengið leyfi til að nota merki Sameinuðu þjóðanna um Áratug menntunar til sjálfbærrar þróunar. Það er alþjóðlega verkefninu Global Action Plan sem var úthlutað leyfinu en Vistvernd í verki er íslenska nafn verkefnisins...
nánar ->
Hjólum saman - hvílum bílinn, Samgönguvika 2006
11. september 2006 - Vistvernd í verki
Dagana 15.-22. september er Evrópsk samgönguvika haldin í 757 evrópskum borgum og bæjum. Þema vikunnar að þessu sinni er loftlagsbreytingar. Laugardaginn 16. september mun ÍFHK sjá um hjólalestir úr úthverfum...l
nánar ->
Vistvernd í verki fær nýtt merki
5. september 2006 - Vistvernd í verki
Nýtt merki hefur verið hannað fyrir Vistvernd í verki Merkið er sérlega táknrænt og fallegt, og tengir saman ábyrgð mannfólksins, gróður, vatn og jörð. Landvernd kann hönnuðinum, Hrafni Þorra Þórissyni kærar þakkir fyrir framlagið.
Smellið á yfirskrift fréttarinnar til að sjá merkið með texta.
Þeir sem vilja kynna sér önnur verk og störf Hrafns geta skoðað heimasíðu hans, vortex.is/raven

nánar ->
Sólarvörn fyrir börn - lesist fyrir sumarfrí
30. júní 2006 - Vistvernd í verki
Grønn Hverdag hefur kortlagt innihlad 19 tegunda af sólkrema fyrir börn á norska markaðnum og metið og raðað vörunum eftir innihaldi af hormónatruflandi efnum, ofnæmisvaldandi efnum og umhverfisáhrifum efnanna. Eins og oft hefur komið fram í könnunum Grönn hverdag á barnasnyrtivörum kom Babyline vara best út, en Babyline sólarkrem er eina svansmerkta sólarvörnin á norskum markaði. Vistvernd í verki hefur ekki upplýsingar um að Babyline fáist á íslenskum markaði, en hvetur verslanir eða byrgja til að fara að selja Babyline vörurnar á Íslandi. Sjá niðurstöður könnunar Á síðunni er einnig að finna mörg góð ráð um börn og sól og Vistvernd í verki vill sérstaklega minna á að sólarvörn á ekki að nota í þeim tilgangi að lengja tímann úti í sól því nýjustu rannsóknir sýna að þó sólarvarnir verji gegn bruna, verja þær húðina ekki fyrir öllum tegundum geisla sólarinnar sem auka líkur á húðkrabbameini og valda skemmdum í húðinni.
nánar ->
Kofi Annan vill sjá vistvernd í verki
29. júní 2006 - Vistvernd í verki
Á alþjóðlegum fundi um umhverfismál í gær lýsti Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, þeirri skoðun sinni að þrýstingur frá almennum borgurum og breytni þeirra myndi í raun ráða úrslitum um það hvernig leysast mun úr þeim ógnum sem mannkynið stendur frammi fyrir vegna hrörnun umhverfisins. Næstu ár verða líklega örlagarík í þessu samhengi....
nánar ->
Fljótsdalshérað í grænum gír
30. maí 2006 - Vistvernd í verki
Hallormsstaðarskóli fékk Grænfánann afhentan í annað sinn laugardaginn 27. maí og á sama tíma fengu 15 fjölskyldur viðurkenningu fyrir þátttöku í Vistvernd í verki í vetur. Sjá frétt í Morgunblaðinu í dag.
Anna Björk Hjaltadóttir, umhverfisfulltrúi á Fljótsdalshéraði fékk skírteini sem fullgildur leiðbeinandi og Agnes Brá Birgisdóttir sem áður fyrr á árunum var leiðbeinandi í Árborg fékk einnig nýtt og glæsilegt leiðbeinendaskírteini....
nánar ->
Aljþóðafundur Vistverndar í verki
26. maí 2006 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki er íslenska nafnið á verkefninu Global Action Plan (GAP)sem sett hefur verið á laggir í 19 löndum. Verkefnið var kynnt alþjóðlega á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Rio árið 1992 og er sérstaklega sniðið til að stuðla að sjálfbærri þróun neðan frá grasrótinni. Verkefnið snýr að sjálfbærum lífsstíl og styður og hvetur fólk til að tileinka sér lífsvenjur og heimilishald sem hlýfir umhverfi og eflir heilsu. Alþjóðafundur aðildarlandanna var haldinn í Svíþjóð helgina 19.-21. maí ...
nánar ->
Hverju smyrjum við á börnin?
26. maí 2006 - Vistvernd í verki
Grönn Hverdag í Noregi hefur rannsakað 109 húðvörur fyrir börn og metið þær út frá innihaldi á efnum sem skaða umhverfi og heilsu. Skoða könnun Þrjár tegundur innihéldu bönnuð efni. Önnur innihéldu mismikið af ofnæmisvaldandi efnum, hormónaraskandi efnum og efnum sem eru slæm fyrir umhverfið á annan hátt. Sum töldust óskaðleg og fengu hæstu einkunn í könnuninni. Það væri gaman ef hægt væri að framkvæma samskonar rannsókn á íslenska markaðnum en þangað til getum við notað upplýsingar frá nágrönnum okkar og spurst fyrir um bestu vörurnar þegar við verslum. Eftirspurnin skiptir máli. Vörurnar í könuninni skiptast í...
nánar ->
Umhverfis- og menningardagur í Grundarfirði
17. maí 2006 - Vistvernd í verki
Boðað er til sérstaks umhverfis- og menningardags í Grundarfirði, næstkomandi laugardag, 20. maí. Það eru Grundarfjarðarbær og fræðslu- og menningarmálanefnd, í samvinnu við áhugasama einstaklinga um umhverfismál sem standa fyrir deginum....
nánar ->
Blómstur í Bláskógabyggð
15. maí 2006 - Vistvernd í verki
Fjórði visthópurinn er farinn af stað í Bláskógabyggð og starfið blómstrar. Grunnskólinn á Laugarvatni er Grænfánaskóli og á undanförnum misserum hafa heimili sem tengjast um 60% barnanna í skólanum tekið þátt í Vistvernd í verki svo ætla má að þarna sé að vaxa úr grasi umhverfismenntuð kynslóð. Sýning Vistverndar í verki er til sýnis í Sunlauginni á Laugarvatni um þessar mundir og ein af verðlaununum fyrir getraun sýningarinnar er fríkort í náttúrulega gufubaðið á Laugarvatni. Svo nú er bara að drífa sig í heimsókn, sýningin mun standa fram í júní.
nánar ->
Látum hjólin snúast
4. maí 2006 - Vistvernd í verki
Í gær hófst átakið HJÓLAÐ Í VINNUNA og allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir sig að taka þátt og skrá sig á heimasíðunni hjolad.isisport.is .
Í tengslum við átakið verður haldin ráðstefna fimmtudaginn 11. maí sem er öllum opin. Þema ráðstefnunnar er HEILBRIGÐAR SAMGÖNGUR...
nánar ->
Vistvæn börn
7. apríl 2006 - Vistvernd í verki
Þrír kátir krakkar fengu verðlaun frá Vistvernd í verki í vikunni. Þau höfðu öll svarað getraun um vistvænan lífsstíl í Bókasafni Seltjarnarness þegar farandsýning verkefnisins stóð þar fyrir skömmu....
nánar ->
Nennum fyrir nútíðina
5. apríl 2006 - Vistvernd í verki
Það er löngu ljóst að lífsstíll og neysla mannanna gerir kröfu um að hráefnum sé komið í hringrás í stað þess að farga þeim á haugum. Á undanförnum mánuðum hefur margt breyst sem varðar sorpflokkun hér uppi á klakanum og ekki síst á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjavík þar sem valmöguleikar í sorphirðu hafa einnig breyst. Gámaþjónustan býður öllum á höfuðborgarsvæðinu þjónustu þar flestir flokkar flokkaðs sorps eru sóttir heim og í Reykjavík geta íbúar lækkað sorphirðukostnað með því að fækka tunnum við hús sín eða lengja bilið milli tæminga. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum SORPU, Gámaþjónustunnar, og Reykjavíkurborgar

nánar ->
Sanngjörn verslun?
30. mars 2006 - Vistvernd í verki
Verkamönnum á ökrum þróunarlandanna sem rækta matinn ofan í okkur eru oft búin ömurleg vinnuskilyrði, laun geta verið sáralítil, börnum þrælað út á ökrunum og eiturefnum spúð yfir verkamennina svo fátt eitt sé nefnt. Alþjóðlega viðurkennt vottunarkerfi fyrir sanngjarna eða svokallaða siðgæðisvottaða verslun (FAIR TRADE) hefur náð mikilli útbreiðslu í Evrópu en slíkar vörur hafa hingað til varla sést í hillum verslana. Starfsmaður Vistverndar í verki átti leið í Hagkaup í Skeifunni á dögunum og stökk hæð sína í loft upp þegar hann rakst á hillur fullar af siðgæðisvottuðum vörum...
nánar ->
Glaðbeittur hópur bakhjarla Vistverndar í verki
17. mars 2006 - Vistvernd í verki
Styrktaraðilar Vistverndar í verki á árinu 2006 hittust í umhverfisráðuneytinu á dögunum og undirrituðu sameiginlega samstarfsyfirlýsingu. Það eru umhverfisráðuneytið og 14 fyrirtæki sem styrkja verkefnið í ár. Öll fyrirtækin vinna að umhverfismálum með mismunandi hætti og er hægt að skoða heimasíður þeirra með því að smella á tenglana hér til hægri....
nánar ->
Endurnýtt á skrifstofunni
1. febrúar 2006 - Vistvernd í verki
Á sameiginlegri skrifstofu Landverndar, Skógræktarfélags Íslands og Fuglaverndar er reynt á ýmsa vegu að glíma við vistvænt skrifstofuhald. Það var þó að hluta til neyð sem rak Tryggva (framkvæmdastjóra Landverndar) og Hrefnu (skrifstofustjóra Skógræktarfélgsins) til að ....
nánar ->
Hlutskarpur Reykjavíkurbúi
6. janúar 2006 - Vistvernd í verki
Sævar Reykjalín fékk afhentan stuttermabol með Herðubreið - Þjóðarfjalli Íslands frá Landvernd í gær. Hann svaraði öllum spurningum rétt í getraun Vistverndar í verki í Ráðhúsinu í Reykjavík nú fyrir jólin og var dreginn út sem vinningshafi. Sýning Vistverndar í verki (með getrauninni) verður næst sett upp í Bókasafni Seltjarnarness um miðjan janúar.
nánar ->
Grænt á Fljótsdalshéraði
27. desember 2005 - Vistvernd í verki
Í morgun var undirritaður samningur um Vistvernd í verki á Fljótsdalshéraði. Fyrir nokkrum árum var Austur-Hérað (sem nú tilheyrir Fjótsdalshéraði) þátttakandi í verkefninu og höfðu 16 heimili tekið þátt í verkefninu. Síðan þá hafa sveitarfélög verið sameinuð og nýr umhverfisfulltrúi tekið til starfa ...
nánar ->
Umhverfisgróska á Snæfellsnesi
16. desember 2005 - Vistvernd í verki
Þrír bæjarstjórar á Snæfellsnesi hafa nú undirritað samninga um Vistvernd í verki. Það eru stóru bæjarfélögin þrjú, Stykkishólmsbær, Grundarfjörður og Snæfellsbær sem tóku sig saman en Snæfellsnesið í heild er þátttakandi í GreenGlobe21 vottunaráætlun. Það verður spennandi að fylgjast með þróun mála á Nesinu því þar er sannarlega verið að nálgast umhverfismálin úr mörgum áttum og núna einnig með Vistvernd í verki sem má segja að sé staðardagskrá heimilanna...
nánar ->
Grasagudda
15. desember 2005 - Vistvernd í verki
Grasagudda er nýlegur vefur, afar fjölbreyttur og skemmtilegur, sem fjallar meðal annars um notkun íslenskra jurta. Það er Guðrún Tryggvadóttir myndlistakona sem er stofnandi vefsins sem er í örri þróun og margt spennandi framundan. Vefurinn er gagnvirkur á ýmsa máta og það nýjasta er jólasokkur og jólasökker!! Sokkurinn og Sökkerinn taka við tillögum og athugasemdum um vistvænt og óvistvænt jólahald. Á Þorláksmessu verður heppinn þátttakandi dreginn úr sokknum/sökkernum og fær vistvæna jólagjöf frá Grasaguddu. Kíkið á Grasaguddu!
nánar ->
Skemmtilegur jólafundur
7. desember 2005 - Vistvernd í verki
Á jólafundi Vistverndar í verki í gær sem haldinn var í húsi Norræna félagsins sköpuðust líflegar umræður um hvernig væri hægt að halda vistvæn og heilsusamleg jól, gefa persónulegar gjafir og gjafir sem láta gott af sér leiða....
nánar ->
Seltjarnarnes bætist í hópinn
5. desember 2005 - Vistvernd í verki

Mánudaginn 28. nóvember skrifaði Hrafnhildur Sigurðardóttir undir samninga um Vistvernd í verki fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar og Tryggvi Felixson fyrir hönd Landverndar. Vistvernd í verki býður Seltjarnarnes velkomið í hópinn....
nánar ->
Orð dagsins
26. nóvember 2005 - Vistvernd í verki
Hver þekkir ekki Stefán Gíslason? Aha! Þú? Nú veistu þá að þetta er hann og að hann er verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi. Stefán hefur umsjón með Staðardagskrárvefnum og skrifar umhverfisfréttir inn á vefinn nánast daglega. Þetta eru hin frægu ,,Orð dagsins" . Allir sem hafa áhua á umhverfismálum ættu að kíkja reglulega á Orð dagsins og skrá sig líka á póstlista Staðardagskrárskrifstofunnar.

nánar ->
Ný sveitarfélög bætast í hópinn
26. október 2005 - Vistvernd í verki
Tíu sveitarfélög voru virkir þátttakendur í Vistvernd í verki í fyrra vetur en nú eru þau að verða 15. Við bjóðum Hvanneyri, Skorradal, Stykkishólm, Grundafjörð og Fljótsdalshérað velkomin í hópinn. Fulltrúar frá öllum þessum sveitarfélögum sóttu nýafstaðið leiðbeinendanámskeið Vistverndar í verki ásamt nýjum fulltrúum frá Reykjavík og Hafnarfirði samtals 9 manns. Hin sveitarfélögin sem taka þátt eru...
nánar ->
Þurfum fleiri jarðir
11. október 2005 - Vistvernd í verki

Á árinu 2001 voru kröfur á jörðina vegna lífsstíls og tilveru mannkyns 20% umfram getu jarðarinnar (biocapacity) til að standa undir kröfunum. Hvernig er þetta hægt? ...
nánar ->
Leiðbeinendanámskeið
11. október 2005 - Vistvernd í verki
Næstkomandi föstudag og laugardag, dagana 14. og 15. október verður haldið leiðbeinendanámskeið Vistverndar í verki. Kennt verður í húsnæði Landverndar, í Skúlatúni 6 í Reykjavík kl. 17-21 á föstudag og 10-17 á laugardag. Ef einhver hefur áhuga á námskeiðinu og er ekki þegar skráður er hægt að hafa samband við skrifstofu Landverndar, 552-5242 og vistvernd@landvernd.is.
nánar ->
Frídagur bílsins
22. september 2005 - Vistvernd í verki

Samgöngumál eru ofarlega á baugi í samfélaginu. Göng, mislæg gatnamót, breiðari vegir, bílastæðamál, hraðakstur... En einn dag á ári á bíllinn frí!! Mannvænleg höfuðborg með blönduðum samgöngumáta. Hvernig liti hún út? BÍLLINN Á FRÍ Í DAG! Hvernig væri að hægja á hraðanum og njóta sólskinsins? .....
nánar ->
Grænir foreldrar í Öldutúnsskóla
20. september 2005 - Vistvernd í verki

Visthópurinn “Foreldrar á grænni grein”, sem samanstendur af foreldrum barna í Öldutúnsskóla, hélt kynningarfund á starfi sínu á laugardaginn 10. september. Hópurinn var sammála um að þátttakan hefði verið gefandi og sérlega skemmtileg og allir voru sammála um að hún hefði haft talsverð áhrif til hins betra á viðhorf þeirra og jafnvel lífstíl. Til hamingju Hafnarfjörður..
nánar ->
SAMGÖNGUVIKA
16. september 2005 - Vistvernd í verki
Evrópsk samgönguvika verður sett í dag. Þúsund borgir í Evrópu taka þátt í samgönguviku að þessu sinni og er Reykjavíkurborg að taka þátt í þriðja sinn í ár. Hver dagur hefur sitt þema og á morgun Laugardag verður Hjóladagurinn. Dagskrána í heild er að finna á vef Reykjavíkurborgar, www.rvk.is . Á morgun verður spennandi hjólreiðadagskrá og munu hjólalestir leggja af stað frá Spöng í Grafarvogi, Árbæjarsafni, ísbúðinni við Hjarðarhaga og verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði kl. 13 og mætast í Nauthólsvík.....
nánar ->
Nýr vefur - samferda.net
23. ágúst 2005 - Vistvernd í verki
Nú hefur langþráður draumur ræst því komið hefur verið upp vefsíðu sem heitir www.samferda.net. Vefsíðan er ætluð fyrir fólk sem vill deila bensínkostnaði niður á milli sín með því að ferðast saman á einum bíl á milli bæjarfélaga á Íslandi.
Hugmyndin kom frá Þýskalandi en það var hún Anita Hubner sem færði þessa hugmynd til Íslands og fékk hún Birgi Þór Halldórsson með sér í lið við að koma lífi í hugmyndina. Kíkið á heimasíðuna, þið græðið og umhverfið græðir.

nánar ->
Vistvernd í Bláskógabyggð
24. júní 2005 - Vistvernd í verki
Laugardaginn 18. júní voru tveir fyrstu visthóparnir í Bláskógabyggð útskrifaðir formlega og fulltrúum heimilanna afhent viðurkenningarskýrteini. Þriðji hópurinn er að fara af stað og er gaman að segja frá því að nú hafa heimili um helmings barnanna í grunnskólanum tekið þátt í verkefninu en grunnskólinn er grænfánaskóli svo þarna hefur skapast forsenda fyrir góða samfellu í umhverfisuppeldi barnanna...
nánar ->
Hjólalestin kom Bláfánanum til skila
10. júní 2005 - Vistvernd í verki
Ylströndin í Nauthólsvík flaggar nú Bláfánanum þriðja sumarið í röð og geta því gestir strandarinnar baðað sig öruggir í hreinum sjó og legið í sólbaði þar sem fyllsta öryggis er gætt og mikið starf unnið í umhverfismálum
Það var hjólalest Vistverndar í verki sem kom fánanum til skila og hjólaði með hann frá miðbakka Reykjavíkurhafnar á alþjóðlegum umhverfisdegi og sjómannadeginum 5. júní....
nánar ->
Vistvernd í verki í Bláskógabyggð
8. júní 2005 - Vistvernd í verki
Heimili sem tekið hafa þátt í Vistvernd í verki eru nú að verða 600 talsins. Veturinn sem er að líða var blómlegur og gaman frá því að segja að virkni var nokkuð jöfn í þeim 11 sveitarfélögum sem nú taka þátt í verkefninu. Hópur nr. 2 í Bláskógabyggð verður útskrifaður með pompi og prakt á laugardaginn 18. júní, en þar stendur vistverndarfólk fyrir skiptimarkaði á milli kl. 14 og 16. Þetta er hluti af mikilli listahátíð sem fer fram næstu daga og eru allir velkomnir. Hátíðin er kölluð Gullkistan. Smellið hér til að sjá dagskrá Gullkistunnar
nánar ->
Hjólalest á sunnudaginn
2. júní 2005 - Vistvernd í verki
Sunnudagurinn 5. júní er alþjóðlegur umhverfisdagur, tileinkaður sjálfbærum borgum. Af þessu tilefni stendur Vistvernd í verki að hjólalest í samvinnu við Landssamtök hjólreiðamanna undir yfirskriftinni ,,Hjólavæna borg". Allir eru velkomnir. Smellið hér

nánar ->
Hjólreiðar sem fullgildur samgöngukostur
31. maí 2005 - Vistvernd í verki
Á aðalfundi Landverndar, sem haldinn var nýlega var rætt um hjólreiðar sem vistvænan samgöngukost sem jafnframt hefur bætandi áhrif á heilsufar. Fundurinn samþykkti ályktun sem hvetur stjórnvöld til að beita sér fyrir því að hjólreiðar verði formlega viðurkenndar og fái sess sem fullgildur kostur í samgöngumálum. Mikilvægt skref í þessu sambandi er að Alþingi samþykki tillögu til þingsályktunar um stofnbrautir fyrir hjólreiðar.
nánar ->
Allir græða á hjólreiðum
20. maí 2005 - Vistvernd í verki
Nú er nýafstaðinn leikurinn Hjólað í vinnuna og hefur verið gaman að sjá aukninguna á hjólreiðamönnum á götum/gangstéttum borgarinnar. Ávinningurinn af að nota hjól sem samgöngutæki er margfaldur en í stuttu máli má skipta honum í þrennt, heilsufarsávinning, umhverfisávinning og fjárhagsávinning....
nánar ->
Getum við brauðfætt alla með því að draga úr sóun?
15. apríl 2005 - Vistvernd í verki
30-50% matvæla iðnríkjanna fer á haugana. Á hverju ári henda Bretar matvælum að verðmæti jafnvirði 2.400 miljarða króna sem er fimm sinnum meira en þeir verja til þróunaraðstoðar og myndi duga til að afstýra hungri hjá um 150 miljónum manna. Lesið meira í frétt á heimasíðu RÚV

nánar ->
Blaut-klútar varúð
12. apríl 2005 - Vistvernd í verki
Könnun á blautklútum fyrir ungbörn á norskum markaði gefur ekki fagrar niðurstöður. Natusan stendur sig verst. Lesið meira á heimasíðu Grönn hverdag
nánar ->
Ofnæmisvaldandi ilmefni
29. mars 2005 - Vistvernd í verki
Samkvæmt nýjum Evrópusambandsreglum eiga 26 sérlega ofnæmisvaldandi ilmefni að koma fram á umbúðum snyrtivara. Á heimasíðu dönsku samtakanna Miljö og sundhed. er hægt að nálgast bækling sem auðveldar fólki að forðast ofnæmisvaldandi efni í snyrtivörum. Þar er að finna lista yfir efnin 26 sem verður skylt að taka fram á umbúðum sem berast verslunum eftir 11. mars.
nánar ->
Bakhjarlar Vistverndar í verki 2005
16. mars 2005 - Vistvernd í verki

Í dag, 16. mars var undirrituð stuðningsyfirlýsing bakhjarla Vistverndar í verki. Fulltrúar stuðningsaðila ásamt umhverfisráðherra hittust í umhverfisráðuneytinu og stilltu sér upp fyrir myndatöku, hver með táknrænan hlut fyrir sitt fyrirtæki....
nánar ->
Kópavogur bætist í hópinn
13. mars 2005 - Vistvernd í verki
Föstudaginn 4. mars kl. 12 á hádegi var skrifað undir samstarfssamning milli Landverndar og Kópavogs um Vistvernd í verki. Undirskriftin fór fram á Náttúrustofu Kópavogs og það voru bæjarstjóri Kópavogs, Hansína Ásta Björgvinsdóttir og formaður Landverndar, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir sem skrifuðu undir. Þetta markar þáttaskil ...
nánar ->
Aðgengilegar upplýsingar fyrir neytendur
1. mars 2005 - Vistvernd í verki
Nú hefur lífið verið gert einfaldara fyrir alla ljósgrænu neytendurna sem vilja gjarnan taka tillit til umhverfisins og heilsunnar, bara ef það er ekki of flókið eða erfitt. Dönsk heimasíða gefur aðgang að einföldum ráðum um meira en 100 efnisflokka. Hvaða dúkkur eru ekki mýktar með phtalötum? Hvað rakakrem á að velja til að takmarka kemísk efni sem geta valdið skaða? ofl. ofl. Nýtum okkur vitneskju frændþjóðanna.

http://www.miljoeogsundhed.dk/default.aspx?node=5024
nánar ->
Við getum bjargað regnskógunum
17. febrúar 2005 - Vistvernd í verki

Regnskógarnir eru í bráðri útrýmingarhættu. Með sama áframhaldi verður mestum hluta regnskóga Asíu eytt á næstu 15 árum. Í Afríku og Suður-Ameríku á næstu 40 árum. Þú getur tekið þátt í að bjarga regnskógi ...
nánar ->
Fundur leiðbeinenda
2. febrúar 2005 - Vistvernd í verki

Leiðbeinendur og staðbundnir stjórnendur héldu fund á Kaffi Hljómalind, föstudagskvöldið 28. janúar. Stefán Gíslason flutti erindi um sjálfbæra þróun og var fagnað ákaft af fundargestum. Glatt var á hjalla....
nánar ->
Kaupa hamingju?
31. janúar 2005 - Vistvernd í verki

Þarftu að velja á milli þess að kaupa nýja peysu eða tvo miða á tónleika? Kauptu miðana, segir ný rannsókn á því hvort neyslumynstur okkar getur getur gert okkur hamingjusamari......
nánar ->
Fundur fyrir leiðbeinendur
25. janúar 2005 - Vistvernd í verki
Föstudaginn 28. janúar verður fundur fyrir leiðbeinendur og staðbundna stjórnendur hjá Vistvernd í verki. Fundurinn hefst kl. 17:20 með fyrirlestri Stefáns Gíslasonar um Sjálfbæra Þróun. Áætluð staðsetning er húsnæði Landverndar, Ránargötu 18, 101 Reykjavík en nánar verður tilkynnt um staðsetningu á morgun.
nánar ->
Farsímar með mismikilli geislun
12. janúar 2005 - Vistvernd í verki
Sænska upplýsingamiðstöðin um umhverfi og heilsu birtir upplýsingar um könnun á sænska farsímamarkaðinum gerða í desember 2004, sem sýnir að þrír vinsælir símar af tíu standast kröfur sænska umhverfis- og gæðastaðalsins TCO-01. Í maí 2004 var gerð samskonar könnun á 25 símum sem sýndi að 7 símar stóðust kröfurnar. Niðurstöðurnar sýna að það er hægt að kaupa farsíma með lægri geislun, símarnir þrír eru LGT 5100, Nokia 6260 og Siemens S65. Lesið meira um könnunina hér.

nánar ->
Hreinar upplýsingar...
12. janúar 2005 - Vistvernd í verki
um vörur fyrir börn. Er nafn á 20 síðna bæklingi frá sænsku upplýsingamiðstöðinni um umhverfi og heilsu. Fallegur og skemmtilegur bæklingur með alhliða upplýsingar um sápur, sjampó, bað, olíur o.fl. sem viðkemur umhirðu barna. Hér getið þið skoðað bæklinginn og jafnvel prentað út. En munið þá.... prenta báðu megin : )
nánar ->
Seltjarnarnes með í Vistvernd í verki
7. janúar 2005 - Vistvernd í verki
Í Seltjarnarnesbæ hefur verið tekin ákvörðun um að hefja þátttöku í Vistvernd í verki og fór af stað hópur í haust sem er samsettur meðal annars af bæjarstjórnar- og umhverfisnefndarfólki. Öllum þátttakendum voru gefnar jarðgerðartunnur og bíðum við spennt eftir að geta útskrifað hópinn og afhent þeim skírteini. Við bjóðum Seltirningana velkomna í vistverndarhópinn og óskum þeim til hamingju með áfangann.

nánar ->
Vistverndarsýning í Garðabæ
20. desember 2004 - Vistvernd í verki

Sýning Vistverndar í verki um sjálfbæran lífsstíl var í bókasafni Garðabæjar í september og október síðastliðnum. Nú hafa þrír vinningshafar verið dregnir út og fengið afhent verðlaun fyrir getraunasamkeppnina....
nánar ->
Vistvænni bílar leggja ókeypis
10. desember 2004 - Vistvernd í verki
Í Stokkhólmi leggja nú bílstjórar vistvænni bíla svo sem tvinnbíla og rafmagnsbíla ókeypis í gjaldskyld bílastæði og gildir það bæði fyrir stæði við heimahús (sbr. íbúakort í Reykjavík) og í vinnutengd stæði. Þetta getur leitt til u.þ.b. 110 þús. isl. kr. sparnaðar á ári fyrir þá sem keyra vistvænni bíla. Stokkhólmur fetar þannig í fótspor Gautaborgar, Falun og Kristianstad. (Gröna bilisters nyhetsbrev) Væru sömu reglur teknar upp í Reykjavík gætu þeir sem vinna í miðbænum minnkað stöðugjöld um allt að 115 þús. krónur á ári.
nánar ->
Umhverfishátíð í Vogunum
6. desember 2004 - Vistvernd í verki
Í Vatnsleysustrandarhreppi var fyrsti hópurinn að ljúka þátttöku í Vistvernd í verki og af því tilefni efndu þau til umhverfishátíðar í félagsheimilinu. Góð stemning myndaðist og margt var skrafað. Gítarspil og söngur ómaði, 4. og 5. bekkur sá um kaffisölu til styrktar börnum í Uganda og hægt var að kaupa ýmsar heimaunnar vörur og kompudót. Skoðið myndaseríuna frá þessum skemmtilega degi...
nánar ->
Forhitari fyrir díselbíla
3. desember 2004 - Vistvernd í verki
Til eru vélarhitarar fyrir bíla sem hafa þann kost fram yfir aðra hitara að þeim þarf ekki að stinga í samband heldur nota þeir eingöngu orku frá bílnum sjálfum. Forhituð vél þarf minna eldsneyti og mengar 2/3 hlutum minna en köld vél. Það kostar að láta setja hitara í bílinn en borgar sig þegar til lengri tíma er litið bæði hvað varðar eldsneytiskaup og slit á vél, auk þess sem umhverfið nýtur góðs af.
nánar ->
Jólamarkaður Sólheima
1. desember 2004 - Vistvernd í verki
Í skammdeginu og jólaundirbúningnum á Íslandi er huggulegt að kveikja á kertum, jafnvel fullt af kertum. Sum brenna hratt, önnur hægt og sum leka mikið. Hvernig sem kertin eru og hvort sem vaxið er búið að leka eða ekki er það vel nýtilegt til endurvinnslu og nýrrar kertagerðar. Ólíkt flestu hráefni sem er flokkað á Íslandi þarf ekki flytja kertavax til útlanda til endurvinnslu heldur er það endurunnið H'ER Á LANDI. Lesið meira um skil á kertavaxi og jólamarkað Sólheima...
nánar ->
Fleiri jólagjafahugmyndir
1. desember 2004 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki bárust upplýsingar um að á síðu Green Globe 21 væri frábær jólagjafahugmynd. Þar er nefnilega hægt að kaupa gjafakort upp á 1 fm af landi í Ástralíu sem tryggir enduruppbyggingu regnskóga á svæðinu. Fermetrinn kostar 40 dollara - akkúrat passlega stór jólagjöf handa öllum í fjölskyldunni. Kíkið á síðuna Green globe 21
nánar ->
Seglar í þvottavélina
23. nóvember 2004 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki bárust upplýsingar um bandaríska heimasíðu þar sem hægt er að kaupa Magna-Clean þvottasegla sem gera það sama við vatnið og þvottaefni gerir (þ.e. mýkja það). Fullyrt er að ekki þurfi neitt annað til að þvo þvottinn vel en þessa tvo segla sem settir eru í tromluna.
Skoðið síðuna
Í kaupbæti er sýnishorn af blettahreinsi unnum úr sítrusávöxum til að sýna hvernig hægt er að losna við eitraða blettahreinsa út af heimlinum líka.
Sá sem sendi okkur upplýsingarnar um heimasíðuna hefur notað seglana og blettahreinsinn um langt skeið og ber tækninni vel söguna.
nánar ->
Virkjun lands og þjóðar
23. nóvember 2004 - Vistvernd í verki
Er íslenskur almenningur vel upplýstur um framkvæmdir á hálendinu?
Hefur hann fengið réttar upplýsingar, er hann nógu vel upplýstur til þess að taka afstöðu til stórvirkjana á hálendinu?
Eru ákvarðanir um þessi afdrifaríku mál lýðræðislegar?
Hverjum ber skylda til að upplýsa almenning, stjórnvöldum eða fjölmiðlum?

Þetta eru spurningarnar sem reynt verður að svara á laugardagsfundum ReykjavíkurAkademíunnar í nóvember. Tveir fundir verða haldnir, 20. nóvember kl. 13:00 og 27 nóvember 10:00. Athygli er vakin á breyttum fundartíma. Nánari upplýsingar á www.akademia.is
nánar ->
Vort daglegt brauð
15. nóvember 2004 - Vistvernd í verki
Starfsmaður Vistverndar í verki seildist upp í skáp eitt kvöldið þegar þurfti að elda eitthvað fljótlegt og greip pakka með kartöflumús frá Food-Line sem leigandi hafði skilið eftir fyrir skömmu. Áður en duftið fór í pottinn varð honum þó litið á innihaldslýsingu pakkans og tók þónokkra stund að lesa sig í gegnum hana....
nánar ->
Mikilvægt fyrir neytendur
8. nóvember 2004 - Vistvernd í verki

Grönn hverdag, norsk umhverfissamtök hafa gert úttekt á ýmsum húð og snyrtivörum og birta niðurstöðurnar á heimasíðu sinni. Verið er að skoða umhverfis- og heilsuáhrif varanna. Ef þið hafið áhuga á að vernda jörðina og heilsuna er gott að prenta út hluta niðurstaðnanna og vera með málin á hreinu næst þegar verslað er. Um er að ræða sólkrem og aðrar húðvörur bæði fyrir börn og fullorðna, sjampó, varasalva og andlitsmálningu. Skoðið Grönn hverdag

nánar ->
Ekki er allt sem sýnist
3. nóvember 2004 - Vistvernd í verki
Verkefnisstjóri Vistverndar í verki velti því fyrir sér á dögunum með örlitlum pirringi hversvegna svansmerkt Neutral þvottaduft í litlum pakkningum væri nokkurn veginn jafndýrt og stór Neutral pakkning sem ekki er svanamerkt. Er verið að okra á okkur sem viljum umhverfinu vel? Því brá hún á það ráð að senda bréf til framleiðandans með verðfyrirspurn og fékk svar um hæl....
nánar ->
Orkan okkar í Smáralind
29. október 2004 - Vistvernd í verki
Í dag, föstudaginn 29. október, klukkan 16:00 hefst sýning í Vetrargarðinum í Smáralind og stendur fram til sunnudagskvölds.
Í hundrað ár höfum við Íslendingar notið þeirrar gæfu að framleiða raforku á hreinan og vistvænan hátt. Orka þessi hefur gjörbylt lífsskilyrðum okkar og á stóran þátt í þeirri velmegun sem við búum við í dag!
Byggt hefur verið 300 fermetra framtíðarheilmili í Vetrargaðinum......
nánar ->
Fundur um umhverfissiðfræði
29. október 2004 - Vistvernd í verki
Laugardaginn 6. nóvember verður málstofa í Reykjavíkurakademíunni undir heitinu Umhverfissiðfræði - tæknihyggja.
Málþingið stendur frá 12-15 og eru allir velkomnir, boðið er upp á veitingar á vægu verði....
nánar ->
Umhverfisvænni bílar eru vinsælir
29. október 2004 - Vistvernd í verki
Toyota ætlar að selja 300.000 tvinnbíla á næsta ári. Hingað til hafa þeir verið með Toyota Prius til sölu en á næsta ári bætast við tvær nýjar týpur, og verður önnur þeirra sett á markað hér á landi, Lexus jeppi sem heitir RX300.
Eftirspurn eftir tvinnbílum hefur verið miklu meiri en framboð undanfarið ár og því er stefnt á að auka framleiðsluna til muna. Bílarnir ganga fyrir bensíni og rafmagni og þarf aldrei að stinga þeim í samband því þeir hlaða rafhlöðuna sjálfkrafa við akstur. Toyota Prius hefur fengið rífandi góðar viðtökur hér á landi.
nánar ->
Soroptimistar taka Vistvernd í verki með trompi
5. október 2004 - Vistvernd í verki
Síðastliðinn vetur tóku 5 konur í klúbbi Soroptimista í Reykjavík þátt í Vistvernd í verki. Þær héldu svo kynningarfund á haustfundi Soroptimista af öllu landinu laugardaginn 2. október við frábærar undirtektir hundrað kvenna og mynduðust þegar á staðnum þrír nýir visthópar...


nánar ->
Verksmiðjubúskapur
5. október 2004 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki bárust upplýsingar um heimasíðu með örstuttri teiknimynd um verksmiðjubúskap og gat ekki legið á leyndarmálinu. Skoðið heimasíðuna.
http://themeatrix.com


nánar ->
Dalvíkurbyggð í vistvernd
5. október 2004 - Vistvernd í verki
Í september gerðist Dalvíkurbyggð aðili að Vistvernd í verki og var haldinn kynningarfundur fyrir íbúa sveitarfélagsins, mánudagskvöldið 13. september. Í kjölfarið fór af stað visthópur með 7 fjölskyldum. Vistvernd í verki óskar Dalvíkingum og Svarfdælingum til hamingju og býður þau velkomin til starfa. Það er Kolbrún Reynisdóttir, eigandi Gistiheimilisins Árgerði sem er drifkrafturinn í verkefninu og hefur tekið að sér að leiðbeina visthópum og stýra verkefninu í samvinnu við bæinn.

nánar ->
7 þátttakendur á leiðbeinendanámskeiði
17. september 2004 - Vistvernd í verki
Dagana 10. og 11. september var haldið leiðbeinendanámskeið hjá Vistvernd í verki. Þátttakendur voru sjö frá jafnmörgum sveitarfélögum og skapaðist mjög góður (vistverndar) andi þessa daga...

nánar ->
Bíllausir dagar - tökum þátt
15. september 2004 - Vistvernd í verki

Tökum þátt, tökum þátt –
Evrópska samgönguvikan 16.-22. sept.

Rúmlega 30 lönd og mörg hundruð borgir taka þátt í evrópsku samgönguvikunni sem lýkur með bíllausa deginum 22. september. Þema vikunnar nú er öruggar götur fyrir börn. Í Reykjavík er skipulögð mikil dagskrá alla daga vikunnar og má nálgast hana á heimasíðu borgarinnar www.rvk.is. Mikilvægt er að nota tækifærið og hvetja alla til að leggja bílum eins og hægt er og draga fram hjólin, ganga eða taka strætó...
nánar ->
Kynningarfundur á Álftanesi
8. september 2004 - Vistvernd í verki
Á Álftanesi er öflugt visthópastarf en sveitarfélagið hóf þátttöku í fyrrahaust og er nú annar hópurinn að ljúka starfsemi sinni. Hópurinn heldur kynningarfund fyrir áhugasama um verkefnið í Haukshúsi, þriðjudagskvöldið 14. september kl. 8:30. Allir sem hafa áhuga á umhverfismálum og sjálfbærum lífsstíl, sparnaði í heimilisrekstri eða uppbyggilegri samveru með góðu fólki eru hvattir til að mæta.
nánar ->
Fundur leiðbeinenda og stjórnenda
2. september 2004 - Vistvernd í verki
Leiðbeinendur og staðbundnir stjórnendur Vistverndar í verki munu funda og halda haustfagnað þriðjudaginn 7. september. Fundurinn verður haldinn að Dalsá í Mosfellsdal en hefst með kynningu og fyrirlestri í SORPU um endurvinnslu og endurnýtingu. Kynningin er í höndum Gyðu Sigríðar Björnsdóttur. Hér eru upplýsingar um fundinn og dagskrá...
nánar ->
Sýning Vistverndar í verki
30. ágúst 2004 - Vistvernd í verki
Veggsýning Vistverndar í verki er nú staðsett í Bókasafni Garðabæjar og mun vera til sýnis þar til 1. nóvember. Sýningin var síðast staðsett í Hafnarfirði og hefur nú verið dregið úr réttum svörum við getraun sýningarinnar. Við óskum Vinningshöfunum innilega til hamingju og hvetjum Garðbæinga og aðra sem eiga eftir að sjá sýninguna til að gera sér ferð í Bókasafn Garðabæjar...
nánar ->
Visthópastarf
30. ágúst 2004 - Vistvernd í verki
Síðastliðinn vetur voru 11 visthópar starfandi á landinu og fer fjöldi þátttakenda sem hefur tekið þátt í verkefninu að nálgast 500 manns. Enginn getur gert allt - en allir geta gert eitthvað ....
nánar ->
Leiðbeinendanámskeið
11. ágúst 2004 - Vistvernd í verki
Dagana 10. og 11. september verður haldið leiðbeinendanámskeið hjá Vistvernd í verki. Nokkur sveitarfélög sem eru að hefja starf við verkefnið nú í haust senda fulltrúa á námskeiðið auk þeirra sem þurfa að bæta við sig leiðbeinendum...
nánar ->
Getspakir vistverndarmenn
11. júní 2004 - Vistvernd í verki
Dregið hefur verið úr innsendum svörum í getraun Vistverndar í verki. Þrír getspakir duttu í lukkupottinn. Sýningarstandur Vistverndar í verki sem undanfarið hefur verið í ráðhúsi Reykjavík, er nú kominn í Hafnarfjörð. Í bókasafninu í Hafnarfirði, þar sem standurinn er nú, má taka þátt í næsta áfanga í getrauninn. Meira um málið hér
nánar ->
Umhverfisvænasti bíllinn 2004
4. júní 2004 - Vistvernd í verki
Það verður æ auðveldara fyrir bifreiðakaupendur að taka ábyrgð á umhverfinu. Gröna Bilister í Svíþjóð, bifreiðaeigendafélag með umhverfisvernd að leiðarljósi, hefur látið gera könnun á framboði vistvænni bíla....
nánar ->
Soroptimistar í visthópi
3. júní 2004 - Vistvernd í verki
Í gærkvöldi lauk visthópur samsettur af konum úr klúbbum Soroptimista störfum. Fundirnir hjá þeim höfðu verið mjög frjóir og skemmtilegir og voru þær með ýmsar ráðleggingar á takteinum....
nánar ->
Sýning um vistvænan lífsstíl
26. maí 2004 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki hefur látið hanna sýningarstand um vistvænan lífsstíl. Þetta er skemmtileg og lifandi sýning með myndrænum upplýsingum og allir geta tekið þátt í getraun um leið og sýningin er skoðuð. Sýningin var tekin í notkun í Smáralind á degi umhverfisins og var þaðan flutt í Ráðhús Reykjavíkur ...
nánar ->
Vistvernd í sókn með góðum stuðningi
25. maí 2004 - Vistvernd í verki
Vistvernd í verki hefur gert samninga við 7 fyrirtæki auk umhverfisráðuneytisins um stuðning fyrir árið 2004. Þau sem styrkja verkefnið þriðja árið í röð eru Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur, Sorpa og Toyota en þrjú ný fyrirtæki hafa bæst í hópinn, Dýrabær, Yggdrasill og Tæknival. Á myndinni má sjá...
nánar ->
Dýrabær – það besta fyrir dýrin
25. maí 2004 - Vistvernd í verki
Virðing fyrir umhverfi okkar, dýrum og náttúru landsins eru hjartans mál eigenda verslunarinnar Dýrabæjar og leggja þau áherslu á að umgangast hvort tveggja af virðingu. Þau hafa það að markmiði að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukaefnalausar vörur fyrir gæludýr og jafnframt að uppfylla gildandi lög og reglugerðir á sviði umhverfismála. Dýrabær er einn af stuðningsaðilum Vistverndar í verki. Þau hafa skapað sér sérstöðu sem verslun með vörur og fóður fyrir gæludýr...
nánar ->
Vistverndarstarfið í skýrslu
19. maí 2004 - Vistvernd í verki
Í tengslum við aðalfund Landverndar 22. maí 2004 hefur verið tekin saman skýrsla um starfið síðust misserin.
nánar ->
Fjölpóstur
16. mars 2004 - Vistvernd í verki
Margir vildu gjarnan vera án auglýsingabæklinga sem hrynja inn um bréfalúguna á hverjum degi. En það vita ekki allir að það er hægt að losna við hann nánast með öllu.
nánar ->
Bananar
2. mars 2004 - Vistvernd í verki
Í 12 tíma á dag standa konurnar með handleggina á kafi í tönkum af eitruðum kemískum efnum til að bananarnir séu hreinir og fínir þegar þeir koma inn í íslenskar búðir. Afleiðingarnar sjást oft ekki fyrr en komið er að því að þær fæði börn. Það er ekki lengur sjálfsagt að börnin fæðist með tíu fingur og tíu tær.
nánar ->
Hársnyrtivörur
25. febrúar 2004 - Vistvernd í verki
Sænsku náttúruverndarsamtökin Naturskyddsföreningen (SNF) hefur rannsakað 38 algengar hársnyrtivörur; froðu, gel, sprey, vax og krem. 37 þeirra 38 sem rannsakaðar voru innihalda heilsu- eða umhverfisspillandi efni.
nánar ->
Andlitslitir
17. febrúar 2004 - Vistvernd í verki
Í Morgunblaðinu fimmtudaginn 27. febrúar var birt góð grein um andlitsliti fyrir börn. Vitnað er í vef Umhverfisstofnunar (ust.is) og danskan vef upplýsingastofnunar um umhverfi og heilbrigði (greeninfo.dk). Smellið á fréttina til að lesa alla greinina.
nánar ->
Kynningarfundur í Reykjavík
11. febrúar 2004 - Vistvernd í verki
Visthópurinn Mávarnir heldur kynningarfund í Hlíðaskóla, fimmtudagskvöldið 19. febrúar kl. 20. Allir eru hjartanlega velkomnir. Kynnt verður verkefnið Vistvernd í verki og hvernig ,,Mávarnir" skemmtu sér við að gera lífsstílinn vistvænni í skemmtilegri samvinnu. Allir sem vetlingi geta valdið ættu að mæta á þennan fund þar sem tækifæri gefst til að skrá sig í visthóp.
nánar ->
Tannbursti sem segir sex
9. febrúar 2004 - Vistvernd í verki
Hvað er betra en að enda langan, umhverfisvænan dag með vistvænni tannbursta í hönd. Sumum gæti virst tannbursti vera smáatriði en allt smátt gerir eitt stórt og á Norðurlöndunum er hent árlega 5-700 tonnum af tannburstum.
nánar ->
Sebamed fjarlægir hættuleg efni úr húðvörum sínum
8. janúar 2004 - Vistvernd í verki
Eftir að norsku samtökin Grönn hverdag gerðu könnun á innihaldsefnum 31 húðvara fyrir ungabörn í október síðastliðnum brugðust framleiðendur Sebamed vara við með því að ákveða að fjarlægja öll efni sem geta mögulega reynst hormónatruflandi eða skaðleg umhverfinu fyrir júlí 2004.
Lesið meira á heimasíðu samtakanna.
nánar ->
Vistvænar gjafir
19. desember 2003 - Vistvernd í verki
Landvernd hefur nú gefið út falleg gjafakort fyrir vistvænar gjafir. Gefandinn fyllir út kortið sjálfur. Er nokkuð dýrmætara en tíminn okkar og samverustundir? Gefum nuddtíma, barnapössun eða annað sem inniheldur meira af tíma en efni. Hér er fjársjóður hugmynda. Hægt er að panta 10 stk. á 500 kr.

nánar ->
Hveragerði
10. desember 2003 - Vistvernd í verki
Hvergerðingar eru ótrúlega seigir. Nú er 7. hópurinn þar í bæ að ljúka visthópagöngu og mun halda af því tilefni kynningarfund fyrir alla sem vilja kynna sér verkefnið eða taka þátt í því. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 12. janúar klukkan 20:00 í Grunnskólanum.
nánar ->
Natusan fegrar raunveruleikann
18. nóvember 2003 - Vistvernd í verki
Natusan er leiðandi á markaðnum hvað varðar húð og hárvörur fyrir börn. Þau markaðsstetja vörur sínar sem ,,mildar". En sannleikurinn er annar: Flestar vörutegundirnar innihalda hormónatruflandi efni. Aðeins tvær af 18 tegundum eru alveg án heilsu- eða umhverfisspillandi efna.
Lesið niðurstöður á heimasíðu Grönn hverdag
Natusankönnun
nánar ->
Vistakstur
17. nóvember 2003 - Vistvernd í verki
Frá 1990 til 2002 jókst árleg losun kolefnis vegna samgagna hér á landi um 15% og í nýlegri spá er gert ráð fyrir að þessi losun geti enn aukist um liðlega 20% fram til ársins 2020, verði ekkert að gert.
nánar ->
Kynningarfundur fyrir Garðbæinga
17. nóvember 2003 - Vistvernd í verki
Fjórði visthópur Garðabæjar lýkur nú göngu sinni og heldur kynningarfund Þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20:00. að Lyngási 18 í Garðabæ, Þjónustumiðstöð. Þessi kraftmikli hópur kallar sig Haustálfa og er ljóst að önnur sveitarfélög þurfa að fara að beisla gandinn ef þau ætla að halda í við dugnað Garðbæinga í visthópaþátttöku. Allir eru velkomnir á fundinn.
nánar ->
Samgönguvika
29. september 2003 - Vistvernd í verki
Evrópsk samgönguvika hefst mánudaginn 15. september og stendur Reykjavíkurborg fyrir ýmsum viðburðum og fundum í tilefni hennar. Hver dagur er helgaður ákveðnu málefni og hvetjum við alla til að fylgjast með spennandi dagskrá í fjölmiðlum þegar nær dregur. Í lok umferðarvikunnar er bíllausi dagurinn sem er mánudagur 22. september. Látum í okkur heyra og fyrir okkur finna. Er einkabíllinn ennþá þjónn eða er hann orðinn herra? Getum við leyst mengunar- og umferðarteppuvandann sjálf, með breyttum samgönguvenjum?
nánar ->
Ný uppfærsla vefs Landverndar
3. júlí 2003 - Vistvernd í verki
Ný uppfærsla vefs Landverndar er komin í loftið með sérvefi fyrir Vistvernd í verki, Bláfánann, Grænfánann og Rammaáætlun. Auk nýs útlits er nú vefurinn uppfærður með fullkomnu vefumsjónarkerfi sem gerir notkun hans mun markvissari.
nánar ->
Hafnarfirðingar láta ekki deigan síga
22. apríl 2003 - Vistvernd í verki
Hafnarfjarðarbær hefur verið með frá upphafi í verkefninu Vistvernd í verki og eins og venjulega er þar líf og fjör. Nýlega fóru af stað tveir hópar; Hulduherinn og Hringrásin.
nánar ->
Hvítársíða
11. mars 2003 - Vistvernd í verki
Nýtt sveitarfélag hefur bæst í hóp þátttakenda í verkefninu. Hvítársíða er lítið sveitarfélag og hefur það slegið rækilegt met í hlutfallslegri þátttöku íbúa, líklega heimsmet.
nánar ->
Kaffisamsæti fyrir áhugafólk um umhverfisvernd
3. mars 2003 - Vistvernd í verki
Á fundi leiðbeinenda og staðbundinna stjórnenda Vistverndar í verki í febrúar, kom fram að ríkuleg þörf er fyrir vettvang áhugafólks um umhverfismál til að hittast og spjalla.
nánar ->
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is