ji_frontimage3.jpg
Vistvernd
Forsíða
Fréttir
Fyrirspurn
Tenglar
Fréttabréf
Um verkefnið
Hvað er Vistvernd í verki?
Skrifstofa Vistverndar í verki
Þátttökusveitarfélög
Árangur
Fyrir sveitarfélög
Fyrir leiðbeinendur
Sýning
Fróðlegt efni
Vistvæn ráð
Allt um jólin
Spurningar og svör
Greinar
Viðtöl
Vistvænar gjafir
Börnin smá og stór

Börnin smá og stór
Í handbók Vistverndar í verki er ekki sérstaklega fjallað um það hvað sé sniðugt að gera með börnunum á heimilinu til að virkja þau með í Vistvernd í verk.

Þessvegna eru hér nokkrar hugmyndir og er ætlunin að vinna smátt og smátt að því að bæta við atriðum og hugmyndum á þessa síðu. Ef þið eruð með hugmyndir og reynslusögur megið þið gjarnan senda okkur!!

Sorpa gefur út fræðslu-, lita- og þrautabók fyrir krakka þar sem þemað er úrgangur, flokkun og endurvinnsla. Allir sem taka þátt í visthópi geta fengið eintak fyrir börnin sín. Þó ekki sé allt á bókina lært er þarna kjörið tækifæri til að hefja umræður og vinna út frá.

Svo er það tölvuleikurinn honoloko fyrir u.þb. 8 ára og eldri sem umhverfisstofnun Evrópu lét búa til. Leikurinn er á íslensku. Í leiknum er fræðsla um umhverfismál og þarf að taka ýmsar ákvarðanir við daglegt líf á eyjunni honoloko. Í lokin kemur í ljós hversu umhverfisvænu og heilsusamlegu lífi maður lifir (á eyjunni).

Heimurinn minn er vefur fyrir grunnskólabörn, unninn í samvinnu Námsgagnastofnunar og Umhverfisstofnunar. Vefurinn er gagnvirkur, með sögum, leikjum og alls kyns verkefnum og fróðleik. Frábær vefur fyrir fólk á öllum aldri. Hér er hægt að sjá hvernig vatnsrof verður, sjá eldgos, sjá hve langan tíma það tekur fyrir hjólför í móum að gróa, prófa hvort þú kannt að flokka úrganginn rétt og svo er hægt hlusta á vefinn líka. Smelltu hér til að komast á vefinn Heimurinn minn
Fyrir utan bækur og tölvur :) þá er rosalega dýrmætt að fara með börnin út í náttúruna. Þó þau séu jafnvel neikvæð og öfugsnúin þá sýnir reynslan að þau læra smám saman að meta náttúruna og njóta hennar.

Góð hugleiðing um börn og tölvunotkun birtist á vef Orion Society í Bandaríkjunum á árinu 2006.
Smellið hér til að fara yfir á vef Orion Society og lesa greinina (á ensku).

Varðandi heimilið þá er sorpið kannski það sem er einfaldast að virkja börnin til þátttöku í. Ræða t.d. um flokkun og hvert hver hlutur fari. En ekki síst að endurskoða hvað fer í ruslið, hvort það sé hægt að nýta hlutinn í stað þess að henda honum. Leyfið börnunum t.d. að safna allskonar öskjum, dósum og dóti sem til fellur til að föndra úr. Þetta örvar hugmyndaflug og uppfinningasemi barna.

Börnin geta tekið þátt í því að passa upp á ljósin, slökkva á eftir sér og að fara vel með vatn. Í verslunarferðum geta þau tekið að sér að leita að svansmerktum vörum.

Það mikilvægasta er að umhverfismálin séu sett fram sem spennandi og skemmtilegt verkefni / lífsstíll en ekki skipanir sem þau eiga að hlýða án þess að skilja hversvegna. Örva þau til að finna upp á einhverju sjálf sem getur sparað umhverfið. Hvað gætum við gert... ?
Landvernd, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík
Sími: 552-5242, Fax: 562-5242, Netfang: vistvernd@landvernd.is