|
Lögverndarsjóður náttúru og umhverfis
Þann 1. september 2002 tók til starfa Lögverndarsjóðs náttúru og umhverfis vegna lögfræðilegra álitamála. Forgöngu um stofnun sjóðsins hafa Fuglaverndarfélag Íslands, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Austurlands, Náttúruverndarsamtök Vesturlands og Umhverfisverndarsamtök Íslands.
Til sjóðsins er stofnað í því skyni að veita fjárhagsstuðning til að fá úrlausn vegna lögfræðilegra álitamála er snerta náttúru- og umhverfisvernd. Markmið sjóðsins er að styðja málafylgju vegna lögfræðilegra álitamála sem að mati stjórnar sjóðsins geta varðað almenna hagsmuni um verndun náttúru og umhverfis og safna og varðveita fé í þessum tilgangi. Sjóðurinn getur ekki átt beina aðild að málarekstri.
Þeir sem vilja leggja sjóðnum lið geta lagt inn fé á bankareikning nr. 1155-15-30252, kt. 630802-2370.
|