Langisjór er langstærsta tæra fjallavatn landsins. Þessari náttúruperlu á hálendi Íslands er oft lýst sem einum fegursta stað á landinu.
Langisjór er í miðju ósnortnu víðerni, þar sem gífurleg eldvirkni hefur mótað stórbrotna náttúru með mörgum jarðmyndunum, sem hver fyrir sig er einstæð á Jörðinni. Frá Torfajökli til Vatnajökuls liggja margir beinir móbergshryggir frá suðvestri til norðausturs, sem eru talin einhver bestu dæmi um móbergshryggi og úthafshrygg sem finnast á þurru landi.
Ljósmynd Haukur Snorrason.
Skaftárveita Landsvirkjun hefur kynnt hugmyndir um að veita vatni úr Skaftá í Langasjó og breyta honum þannig í uppistöðulón. Vatn úr Langasjó yrði þá veitt um göng yfir í Þjórsá. Þessi virkjunarhugmynd kallast Skaftárveita. Verkefnið kallar á umtalvert rask og mannvirkjagerð í jaðri Vatnajökuls. Þessar framkvæmdir myndu koma í veg fyrir stækkun þjóðgarðsins til vestur og þar með draga úr möguleikum þjóðgarðarins til að komast í fremstu röð þjóðgarða á heimsvísu. Frekari friðun á jökuljaðrinum myndi hinsvegar auka enn vægi og virðingu Vatnajökulsþjóðgarðs og stuða að sjálfbæri framþróun byggða, atvinnulífs og mannlífs þar sem sköpunarverkið fengi að njóta sín.