|
Landvernd er frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi.
Samtökin líta svo á að náttúru- og umhverfisvernd, sem og endurreisn spilltra náttúrugæða, séu forsenda efnahagslegrar og samfélagslegrar velferðar til lengri tíma litið. Þau hvetja til sjálfbærrar umgengni þjóðarinnar við náttúruna heima við og á hnattræna vísu, sem byggir á öflugri umhverfisvitund, þekkingu og verndarvilja.
Innan Landverndar eru 47 aðildarfélög um allt land en auk þess eru um 500 manns skráðir sem einstaklingsfélagar. Samtökin reka fjölmörg fræðsluverkefni en þar ber hæst Grænfánann, Bláfánann, Vistvernd í verki, Vistakstur, og Alviðru umhverfisfræðslusetur í Ölfusi. Samtökin voru stofnuð 1969. .
|