Aðalfundur og ný stjórn

Aðalfundur gekk vel en hann var haldinn í Messanum á Akureyri þetta árið.

Í drögum að ályktun frá stjórn til aðalfundar koma fram áhyggjur af því að stjórnvöld sýni náttúrunni lítinn skilning og að stórefla þurfi bæði náttúruvernd og loftslagsaðgerðir.

“Aðalfundur Landverndar ályktar að bregðast verði af fullum þunga við skilningsleysi og neikvæðu viðhorfi gagnvart náttúru Íslands sem birtist hvívetna í málflutningi og aðgerðum ráðamanna. Náttúra Íslands er oft álitin vettvangur til gjörnýtingar í stað náttúruverndar.”

Andri Snær Magnason, rithöfundur hélt opnunar-ávarp fundarins.

Á aðalfundi Landverndar voru samþykktar nokkrar ályktanir um náttúruvernd og loftslagsmál.  Þær má lesa hér

Tíu manns sitja í stjórn Landverndar og er kosið um fimm sæti árlega. Í þetta skipti voru frambjóðendur til stjórnar jafn margir og þau pláss sem losnuðu í stjórn. Sérstaka athygli vekur hátt hlutfall Norðlendinga í verðandi stjórn Landverndar, en þrír af tíu stjórnarmönnum koma nú að norðan.

Ný stjórn Landverndar var kosin einróma á aðalfundi á Akureyri um helgina. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, er áfram formaður, en kosið er um hálfa stjórnina eða fimm manns hverju sinni. Þrír stjórnarmenn gáfu ekki kost á sér, en ný í stjórn eru Davíð Arnar Stefánsson, Svandís Egilsdóttir og Rakel Hinriksdóttir, sem öll eiga djúpar rætur í umhverfisvernd og fræðslumálum og eru virk í landshlutasamtökum . Landvernd fagnar góðum liðsauka.

 Nýja stjórn skipa:

Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður.

Davíð Arnar Stefánsson,

Svandís Egilsdóttir,

Rakel Hinriksdóttir,

Birgir Þórarinsson,

Gunnlaugur Friðrik Friðriksson,

Kristín Vala Ragnarsdóttir,

Kristín Helga Gunnarsdóttir,

Anna Þórhildur Gunnarsdóttir,

Einar Þorleifsson.

Og frá farandi stjórnarfulltrúum þökkuð góð störf. En úr stjórn fóru Helga Hvanndal varaformaður, Stefán Örn Snæbjarnarson og Gústaf Jarl Viðarsson.

Stjórn Landverndar undirbýr dag náttúrunnar

Um þessar mundir eru 20 ár frá því fyrst var farið í Græna göngu til stuðnings náttúru Íslands. Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl, 2026 verður aftur Græn ganga til stuðnings náttúru Íslands. Sama dag taka umhverfissinnar, ungir og aldnir, frambjóðendur til sveitarstjórnar  tali í pallborði í Norræna húsinu og náttúruverndarfólk endar þennan gleðidag náttúrunnar með Hálendishátíð í Iðnó. Ætla má að almennar umræður á aðalfundinum verði helgaðar þessum stóru viðburðum sem framundan eru.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd