Ályktun baráttufundar um vernd náttúrusvæða á Reykjanesskaga

Eldvörp eru einstök á heimsmælikvarða en eru í stórhættu vegna stóriðju! verndum náttúruna gegn stóriðju, landvernd.is
Ellert Grétarsson Mynd Ellert Grétarsson Náttúruperlan Eldvörp á Reykjanesi er algjörlega einstök. Eldvörp eru í hættu.
Baráttufundurinn krefst þess að Alþingi endurskoði þennan þátt áætlunarinnar og færi hið minnsta Sveifluháls í Krísuvík, Sandfell sunnan Keilis, Stóru-Sandvík og Eldvörp í bið- eða verndarflokk.

Hér fer ályktun baráttufundar um vernd náttúrusvæða á Reykjanesskaga 30. maí 2012 sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands stóðu fyrir.

„Baráttufundur um vernd náttúrusvæða á Reykjanesskaga, haldinn í Reykjavík 30. maí 2012, hvetur þingmenn til að endurskoða fyrirliggjandi tillögur rammaáætlunar um Reykjanesskaga þar sem flest jarðhitasvæði frá Hellisheiði ogvestur úr eru sett í nýtingarflokk. Fundurinn telur virkjanir í og við Reykjanesfólkvang óásættanlegar vegna náttúruverndargildis svæðisins og óvissu sem fylgir jarðhitanýtingu, m.a. er varðar losun brennisteinsvetnis og affallsvatns.

Með jarðhitavirkjunum í og við Reykjanesfólkvang er m.a. gengið gegn áformumum að vernda fólkvanginn og stofna þar eldfjallaþjóðgarð, en náttúruverndarhreyfingin og Samtök ferðaþjónustunnar hafa áður bent á þau ríku tækifæri sem í því felast. Jarðfræði Reykjanesskagans er einstök á heimsvísu og upplifunargildi lítt snortinnar náttúru á stórum svæðum í næsta nágrenni höfuðborgarinnar er hátt. Baráttufundurinn krefst þess að Alþingi endurskoði þennan þátt áætlunarinnar og færi hið minnsta Sveifluháls í Krísuvík, Sandfell sunnan Keilis, Stóru-Sandvík og Eldvörp í bið- eða verndarflokk.“

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd