Auður Magnúsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Landverndar

Auður Magnúsdóttir, deildarforseti Auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landverndar. Auður hefur störf 1. maí nk.

Auður Magnúsdóttir, deildarforseti Auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landverndar. Auður hefur störf 1. maí nk.

Auður er með doktorspróf í lífefnafræði frá Stokkhólmsháskóla/Karolinska Institut og hefur stundað rannsóknir á því sviði. Hún starfaði áður sem deildarstjóri hjá Orf Líftækni og hjá Íslenskri erfðagreiningu. Síðastliðin tvö ár hefur hún gengt starfi deildarforseta Auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands. Auður hefur setið í framkvæmdastjórn hjá Orf Líftækni og hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og er formaður Samtaka kvenna í vísindum. Hún hefur sinnt umhverfismálum frá unglingsárum.

Auður tekur við starfinu af Salome Hallfreðsdóttur, en Salome hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra frá því í nóvember sl. þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landverndar, tók við embætti umhverfisráðherra Íslands.

Það þarf kröftugan leiðtoga til þess að leiða það starf sem unnið er á Landvernd en samtökin standa vörð um náttúru Íslands og miðhálendið, berjast gegn plasti í hafi, vinna að landgræðslu, leiða öflugt umhverfismenntastarf í gegnum verkefni sín og stuðla að umræðu um umhverfismál og sjálfbærni í samfélaginu.

Landvernd stendur á tímamótum þar sem að á næsta ári rennur upp 50 ára afmæli samtakanna. Samtökin ætla sér að verða enn öflugri og einlægur málsvari náttúrunnar og markmiðið er að fjölga félagsmönnum svo um munar, enda eru það stuðningsaðilar samtakanna sem tryggja vernd náttúru Íslands og halda umræðu og aðgerðum um umhverfismál á lofti.

Stjórn og starfsfólk Landverndar býður Auði velkomna til starfa og hlakkar til að vinna með henni að háleitum markmiðum samtakanna.

www.landvernd.is

www.facebook.com/landvernd

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd