Fundur um frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga

Landvernd og Stofnun Sæmundar fróða við HÍ efna til opins fundar um ný náttúruverndarlög í Norræna húsinu mánudaginn 18. febrúar kl. 20-22. Allir velkomnir.

Landvernd og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands halda opinn fund um heildarendurskoðun náttúruverndarlöggjafar á Íslandi. Markmiðið með fundinum er að draga fram breytingar á núverandi lögum í heild sinni og ræða hvað er til bóta og hvað megi betur fara.

Frumvarpið verður rætt út frá forsendum breytinga á löggjöfinni að mati nefndar um endurskoðun laganna, kynntar verða helstu breytingar miðað við núverandi lög og athugasemdir lagðar fram af nokkrum hagsmunaaðilum frá náttúruverndar- og útivistarsamtökum. Fundinum lýkur með pallborði og umræðum.

Framsöguerindi:
Forsendur breytinga á lögum um náttúruvernd:
Aagot V. óskarsdóttir, lögfræðingur og ritstjóri hvítbókar um löggjöf til verndar náttúru Íslands.

Frumvarp til laga um náttúruvernd, helstu atriði og breytingar frá fyrri lögum:
Mörður Árnason, alþingismaður.

Athugasemdir áhugahóps um ferðafrelsi:
Elín Björg Ragnarsdóttir, lögfræðingur.

Athugasemdir Útivistar:
Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar

Athugasemdir Landverndar:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar

Pallborðsumræður með frummælendum í lokin. Auk þeirra mun Reynir Tómas Geirsson frá Kayakklúbbnum sitja í palliborði.

Fundarstjóri er Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands.

Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan 20.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd