Landvernd óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa

Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands, óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir náttúru- og umhverfisvernd. Framkvæmdastjóri er málsvari samtakanna og ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun

Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands, óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa.

Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir náttúru- og umhverfisvernd. Framkvæmdastjóri er málsvari samtakanna og ber ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið

  • Daglegur rekstur og stjórnun samtakanna.
  • Umsjón með gerð umsagna og álitsgerða.
  • Virk þátttaka í stefnumótun og innleiðingu stefnu.
  • Þátttaka í fræðslu, fjáröflun og daglegri starfsemi.
  • Regluleg samskipti við fjölmiðla og hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Umfangsmikil þekking á umhverfismálum og náttúruvernd.
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Leiðtoga-, samskipta- og skipulagshæfileikar.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Framtíðarsýn, frumkvæði, drifkraftur og metnaður.

Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2018.

Sækja um starfið

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd