Misskilningur í máli Iðnaðarráðherra

Mikilvægt er að leiðrétta misskilning sem kemur fram í máli iðnaðarráðherra í frétt RÚV í gær um leikreglur í virkjanamálum á Íslandi í tengslum við tillögu Náttúrufræðistofnunar Ísland um friðlýsingu svæða við Drangajökul, en með friðlýsingu væri fyrirhuguð Hvalárvirkjun mögulega úr sögunni

Mikilvægt er að leiðrétta misskilning sem kemur fram í máli iðnaðarráðherra í frétt RÚV í gær um leikreglur í virkjanamálum á Íslandi í tengslum við tillögu Náttúrufræðistofnunar Ísland um friðlýsingu svæða við Drangajökul, en með friðlýsingu væri fyrirhuguð Hvalárvirkjun mögulega úr sögunni.

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir iðnðarráðherra virðist telja að þau mögulegu virkjunarsvæði sem hafa verið settir í nýtingaflokk rammaáætlunar hafi þar með hlotið blessun sem virkjanakostir.

Hið rétta er að með því að setja tiltekið landsvæði í nýtingarflokk rammaáætlunar er heimilt að rannsaka og skoða virkjanakosti á því svæði áfram til nýtingar og þar með setja þá í mat á umhverfisáhrifum. Hvalárvirkjun fór í slíkt mat og álit Skipulagsstofnunar var virkjuninni mjög óhagfellt. Rammaáætlun er í raun grófflokkun á kostum þar sem nánara mat á eftir að fara fram.

Mynd:fifl.is

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd