Upplýsingaskilti um náttúru og öryggismál í Reykjadal

Landvernd sá um gerð upplýsingaskilti um náttúru og öryggismál í Reykjadal.

Þann 23. júní kl. 17 var afhjúpað upplýsingaskilti um náttúru Reykjadals sem sett var upp við Rjúpnabrekkur inn í Ölfusdal ofan við Hveragerði. Annað skilti verður síðan sett upp við Brúnkollubletti á Ölkelduhálsi. Þetta eru skilti með merktri gönguleið og upplýsingum um jarðfræði, náttúrufar og öryggismál á svæðinu. Einnig er þar að finna tilmæli til gesta að ganga vel um dalinn og setja vernd þessa viðkvæma svæðis ávallt í fyrsta sæti.

Skiltið er unnið af Landvernd í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands, Ferðafélag Íslands, Slysavarnarfélagið Landsbjörgu, Safe Travel, Hveragerðisbæ, Sveitarfélagið Ölfus og Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi.

Jafnframt hefur verið unnið að lagfæringum á stígum í Reykjadal sumrin 2012 og 2013 og sett upp hestagerði við Klambragil á vegum Sveitarfélagsins Ölfuss, Hveragerðisbæjar, Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum og Eldhesta. Í sumar verður haldið áfram við lagfæringar á stígum og aðstöðunni við lækinn.

Sá fjöldi ferðamanna sem sækir dalinn heim hefur aukist gífurlega síðustu ár. Líklega eru vel yfir 20 þúsund manns sem fara þar um árlega, ýmist gangandi, hlaupandi, ríðandi eða hjólandi enda dalurinn vinsæll og í stuttri fjarlægð frá þéttbýlinu. Dalurinn þolir ekki þessa miklu umferð nema að áfram verði unnið kröftuglega að endurbótum á stígakerfinu og afmörkuð hættusvæði við heita læki og hveri. Bakkarnir við heitalækinn eru orðnir nær gróðurlausir vegna ágangs að baðstöðum. Þar þarf að koma fyrir pöllum sem hægt er að geyma fötin á og einnig til að stýra hvar er farið að læknum. Með fræðslu um gróðurfar og þá hættu sem fylgir jarðhita er vonast til að þeir sem um dalinn fara virði leiðbeiningar um gönguleiðir og njóti þess að ferðast slysalaust um dalinn og án þess að valda svæðinu skaða.

Tengt efni

Jarðhitasvæði eru meðal sérstæðustu náttúrufyrirbæra á Íslandi og njóta hverir og aðrar heitar uppsprettur ásamt lífríki sem tengist þeim sérstakrar verndar, landvernd.is

Jarðhiti á Íslandi

Reykjadalur er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins í einstakri og viðkvæmri náttúru.Sameinumst um að vernda svæðið. landvernd.is

Gönguleiðir í Reykjadal

Okkar helstu viðfangsefni

Taktu afstöðu með náttúrunni
Gakktu í lið með Landvernd

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd