„Hafið er lífbúnaður plánetunnar okkar og helsti bandamaður okkar í baráttunni gegn hamfarahlýnun. Samt er það á krossgötum, við erum að sjúga lífið úr hafinu.“
Heimildamyndin Ocean, eða Hafið með David Attenborough, verður sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim 8. maí næstkomandi, á 99 ára afmæli Attenborough.
Hafið verður sýnd þrisvar sinnum í Smárabíói fyrir almenna gesti en 9. maí verður sérstök Íslandsfrumsýning á vegum Icelandic Wildlife Fund, Landverndar, Náttúruverndarsamtök, Hvalavinir-Stop whaling in Iceland og NASF. Toby Nowlan, leikstjóri myndarinnar, verður viðstaddur og ávarpar gesti.
“Eftir að hafa lifað í nærri hundrað á þessari plánetu skil ég núna að mikilvægasti staðurinn á jörðinni er ekki á landi heldur sjó,“ segir Attenborough