Frá vitund til verka: Er menntun lykillinn að breyttri hegðun í umhverfismálum?

Næstu erindi í fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins verða flutt af Shelley McIvor frá Global Action Plan í London og Helenu Óladóttur hjá Náttúruskóla Reykjavíkur þann 21. nóvember kl. 16-18.

Fyrirlestraröð Landverndar og Norræna hússins, Frá vitund til verka heldur áfram miðvikudaginn 21. nóvember kl. 16-18 í Norræna húsinu. Þemað að þessu sinni er umhverfismennt og menntun til sjálfbærrar þróunar. Shelley McIvor frá Global Action Plan í London og Helena óladóttir hjá Náttúruskóla Reykjavíkur eru fyrirlesarar að þessu sinni. Upplýsingar um fyrirlestra þeirra er að finna hér að neðan og í viðhengi.

Shelley Mclvor er stefnumótunarstjóri hjá Global Action Plan í London og mun hún ræða um lykilinn að því að fá fólk til að breyta hegðun sinni og verða meðvitaðra um umhverfi sitt. Shelley hefur unnið með viðskiptaaðferðir sem stuðla að sjálfbærni og breyttri starfsmannahegðun sl. 10 ár innan fjölda fyrirtækja með góðum árangri. Hennar helsta takmark er að hvetja einstaklinga til að taka þátt í að skapa sjálfbærari stofnanir og samfélög og hafa gaman af öllu ferlinu í leiðinni. Aðferðir sínar hefur hún meðal annars innleitt hjá O2 Telefonica, Royal Bank of Scotland, Varnarmálaráðuneyti Bretlands og Evrópska Seðlabankanum.

Helena Óladóttir frá Náttúruskóla Reykjavíkur mun ræða um menntun til sjálfbærrar framtíðar, nýjar áskoranir í námskrá á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi sem lýtur að menntun til sjálfbærrar þróunar og h vernig hún hefur birst í íslenskum leik- og grunnskólum. Helena er menntaður kennari og umhverfisfræðingur. Sem verkefnisstjóri Náttúruskóla Reykjavíkur starfar hún við að fræða kennara á ýmsum stigum um útinám, umhverfismennt og menntun til sjálfbærni. Hún tók þátt í gerð nýrrar aðalnámskrár og vinnur nú að þemahefti um sjáfbærni í ritröð Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Námsgagnastofnunar um grunnþætti menntunnar. Helena situr í stjórn Landverndar.

Dagskrá Frá vitund til verka 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd